Jörð - 01.10.1943, Blaðsíða 33
Björn Jónsson framkvæmdi í Nóvember 1909.* „Vestri“
fylgdi, eins og áður, Heimastjórnarmönnum, og flutti
margar árásargreinar á stjórnina lit af þessu máli og
fleirum.
Blaðið „Dagur“ lióf göngu sína nokkuru áður en „Vestri“
* í fyrstu frásögn sinni af máli þessu segir „Vestri“ ni. a. svo:
„Þjóðin situr þögul og forviða yfir þessu athæfi; hún er kviðafull
yfir að verið só að Jeika of liátt spil, sem henni geti að falli orð-
ið, enda mun hún láta stjórnina (ráðherrann) standa reiknings-
skap slikra ráðstafana.“ 1 greininni „Hvcrs vegna berst ráðherra
gegn aukaþingi?“ (18. tbl. IX. árg.) segir m. a. svo: „Nú hefur
hann (Bj. J.ss. ráðherra) sett sína menn til þess að gæta Jjankans
og nú hefur þjóðin engin ráð yfir honum lengur. — Ráðherrann
einn hefúr nú öll lyklavöld að Landsbankanum, og allir landsmenn
verða að láta sér lynda fyrir hverjum liann opnar „sjóðinn sinn“,
svo lengi sem alþingi íslendinga ekki tekur af honum stjórnar-
taumana. Hér er m. ö. o. beinn voði á ferðum, — fjöregg þjóðar-
iunar — Landsbankinn — er nú leiksoppur eins manns. ... Vér
getum fullvissað Björn Jónsson ráðherra um það, að þjóðin gleym-
ir ekki manninum, sem olli eyðileggingu sambandsmálsins, sem
gerði samninginn við Thore og sem hafði fjöregg þjóðarinnar að
Ieiksoppi.“ — í 22. tbl. s. á, er grein, sem nefnist „Fórnir“. Þar
segir svo m. a.: „Enginn maður getur Jjent á, að „ísafold“ hafi
nokkurn tíma komið fram með nokkura nýja stefnu í allri stjórn-
málabaráttu vorri, að hún hafi barizt fyrir nokkurri hugsjón i
því máli, sem væri af liennar eigin rótum runnin ... einungis grip-
ið fegins hendi við öllu nýju, verið alæta allra pólitiskra skoðana
og hrópað liæst allra, á meðan hún fylgdi þeim. — Eftir 1903
hefur stjórnmálaferill „ísafoldar“ verið glöggur. Hann hefur stefnt
að því merki að berjast á móti öllu, sem kom frá stjórn Hannesar
Hafstein. Núverandi ráðherra ... hefur ávallt fyrst og fremst litið
á hagsmuni sína, hann hefur ávallt verið æsingamaður, hljóðað
allra hæst lil að afla sjálfum sér fylgis og hann hefur aldrei bar-
izt stundinni lengur fyrir nokkurri ákveðinni stefnu i stjórnmál-
um vorum, lieldur æfinlega rutt sér þar til rúms, sem bezt gegndi
fyrir hann sjálfan, án þess að athuga það tjón, sem hann hefur
I>akað þjóð sinni með öllum ofstopa sínum, æsingum og gaura-
Sangi. ... ístöðuleysið, hverflyndið, stóryrðin og síngirnin fylgja
núverandi ráðherra.“ — í 24. tbl. segir í greininni „Afrekin“:
„Litilmennska, undirlægjuháttur og hverflyndi út á við, en harð-
stjórn, gerræði og misrétti inn á við, er öll uppskeran af „sigri“
■'ijálfstæðismanna við síðustu kosningar.“
Jörð 285