Jörð - 01.12.1943, Blaðsíða 31
inn ómalaðan inn i landið. — Þá ræðir höf. yfirburði náttúrlegr-
ai matreiðslu og fábreytni í mataræði. Ber honum, að þvi er síð-
ara atriðinu viðvíkur, illa saman við læknana, — en hklega þeim
mun betur saman við reynsluna — með því fororði auðvitað, að
mataræðið sé náttúrlegt. — Bókin ætti að geta orðið mörgum ó-
metanleg, þó að ekki sé bklegt, að ket og fiskur sé raunverulega
óhollur matur í voru landi, og þótt ósykrað skyr með rjóma sé lík-
lega einhver hin heilnæmasta fæða, sem á íslandi verður neytt,
og í þriðja lagi, þó að sálin sé líklega enn voldugri til áhrifa á
likamsheilsuna en mataræðið.
Vaxtarrækt eftir Jón Þorsteinsson. Stærð: 80 bls. — Fjöldi mynda.
Útg.: íþróttaskólinn i Reykjavík. — Ríkisprentsmiðjan Gutenberg.
T) ÓK ÞESSI ræðir aðallega um gildi baksins fyrir heilsuna. Fyrstu
20 síðurnar fjalla almennt um lirygg og hryggskekkju, orsakir
hennar og afleiðingar. Geta 'þær, hvorartveggja, verið furðumarg-
breytilegar og víðtækar. Hryggskekkja kemur aðallega í fólk, á með-
an það er á barnsaldrinum — af ýmiskonar rangri meðferð og
aðferð. — Aðalhluti bókarinnar er nokkur æfingakerfi fyrir hin
ýmsu aldursskeið, til að fyrirbyggja hryggskekkju eða lækna, og
'góðum vexti yfirleitt til eflingar. Sum af þessum æfingakerfum
eru ætluð til notkunar i sæti sínu — i skólabekk. Flestar krefjast
æfingarnar einskis sérstaks, að því er snertir stað og útbúnað. —
Seinast eru smákaflar um æfingar til að temja sér góðan höfuð-
burð og styrkja fæturna við ilsigi. — Læknar hafa fjallað um bók-
ina með höf., en sjálfur er hann einhver ágætasti líkamsræktar-
frömuður og æskulýðsleiðtogi landsins og hefur sérstaka reynslu
á því sviði, sem bókin fjallar um.
íþróttamál I—II eftir Jón Benediktsson, prentara. Smárit, prent-
uð á myndapappír. Útg.: Höf. — Prentverk Odds Björnssonar.
| 1 ÖFUNDUR er aðalhvatamaður að byggingu íþróttahúss Akur-
eyrar, sem nýlega er komið upp, stórmyndarlegt hús i sinni
röð. Bæklingar þessir voru gefnir út fyrir nokkrum árum, til þess
að vekja athygli á því máli og vinna því fylgi og fé. Andvirði
bæklinganna gekk og gengur til íþróttahússins. Enn eru nokkrir
tugir eintaka eftir af þessu óvanalega fallega „prentverki". Bóka-
safnarar ættu ekki að láta það ganga úr greipum sér.
Skýrslur menntaskólans á Akureyri, 1940-41 og 1941-42. 8. árg.
Stærð: 102 bls. í stóru 8 bl. br. — Prentverk Odds Björnssonar.
\ FTAST i heftinu er langt erindi eftir skólameistarann, Sigurð
Guðmundsson, „f bridge lífsins“. Slík erindi og þvílík flytur
skólameistari eitt eða fleiri á vetri fyrir nemöndum sínum. Eru
jörð 379