Jörð - 01.12.1943, Blaðsíða 33
bálk íslenzkra stjórnmála og allrasíðast tillögur. Tillögurnar fara
í nokkuð svipaða átt og tillögur Halldórs Jónassonar. H. St. nálg-
ast viðfangsefnið frá vettvangi sjálfra stjórnmálanna, tekur málið
„praktískt", en H. J. kemur að því frá almennri heimspekilegri
hugsun og nær einfaldara og rökfastara lieildarsjónarmiði. Hvort-
tveggja miðar í aðalatriðum í rétta átt — nema livað það mun
ofætiun Alþingi, sem H. St. gerir sér (veika?) von um: að það
endurfæði sig sjáll't. Það getur enginn endurfætt Alþingi nema
þjóðfundur — og yrði þó að biðja vel fyrir honum til þess!
Hagfræði (stutt kennslubók) eftir Guðlaug Rósinkranz. Stærð:
204 bls. — Útg.: S. Í.S. — Prentsmiðjan Edda hf.
T-»A£) er mjög viðurkenningarvert að leggja út í að semja vand-
1 aða yfirlitsbók um hagfræði á vora tungu, þvi það er vanda-
verk mikið, þar eð svo lítið hefur vérið ritað á Islenzku um þau
efni. Því miður getur JÖRÐ ekki dæmt neitt um, livernig verkið
hefur tekizt, en gerir fastlega ráð fyrir, að miklu betur sé farið
en heima setið — í hvivetna. Kaflar bókarinnar bera þessi nöfn:
1) Lífsnauðsynjar — Þarfir. 2) Framleiðslan. 3) Verðmyndunin.
4) Náttúran og jarðrentan. 5) Vinnan og vinnulaun. 0) Féð og fjár-
rentan. 7) Tækni og skipulag. 8) Verzlun og viðskipti. 9) Verzl-
unarstefnur. 10) Peningar. 11) Erlendur gjaldeyrir. 12) Bankar og
starfsemi þeirra. 13) Ilagsveiflur. 14) Félagsmál. 15) Framleiðslu-
magn og fólksfjölgun.
Hraðkveðlingar og hugdettur eftir Jakob Thorarensen. Stærð:
64 bls. — Úlg.: Höf. — Prentsmiðjan Edda hf.
T-jETTA eru ferskeytlur og aðrir smákveðlingar frá ýmsum aldri
höf. Yrkisefnin eru mjög fjölbreytt, en framsetningin oftast
með höf. kunna lagi. Ég fletti upp af algeru handahófi og hitti á
bls. 19. Þar eru m. a. „Vísa“ og „Eftirmæli“:
Þína dvalar hef ég hitt
hreppa tvo af blygðun rjóða,
og ef nefnt er nafnið þitt
náfrændurna setur hljóða.
Engan vissi ég freyjufaðm
fleirum opinn standa,
aldin höfg af blíðleiks baðm
beggja veitt til handa.
Ferhendur eftir Sigurð Draumland. Stærð: 52 bls. í litlu broti.
Útg.: höf. — Prentsmiðjan ísrún.
í KVERINU eru ferskeytlur
Löngu árin lýsa hár,
launvíg fárin heyja.
Ellisárar æskuþrár
öls í bárum deyja.
JÖRÐ
sem þessar:
Yfir dranga eygló fríð
eldbrim ganga lætur.
Byrgir vanga blómahlíð
blítt í fangi nætur.
381