Jörð - 01.12.1943, Blaðsíða 15
en þú ert sjálfur, koma labbandi inn um hliðið þarna, spurði
liann föður sinn, — livað mundir þú þá laka til bragðs?
Forða mér, vitanlega! Faðir hans gekk í gildruna, þó
ekki blindandi — en með þessu svari var það sannað, að
Heillin, þrátt fyrir flóttann, væri hetja, að minnsta kosti
jafnmikil lietja og faðir drengsins, og lengra þótti ekki
ástæða til að jafna. Hver treystir sér lil að hrinda slíkri
sönnun? En það var ekki aðeins hugrekki Heillinnar, sem
sannaðist á þenna liátt, lieldur einnig yfirburða vitsmunir.
Ilún liafði rænu á að forða sér! Stutt og laggott: hún var
sambærileg að gáfum og hreysti við hvern sem var.
Það var svo langt frá því, að drengurinn væri i minnsta
vafa um það, að sá góði eiginleiki yrði varla fundinn, sem
Heillin væri ekki gædd og það i fyllsta mæli. Á hina hliðina
var liann alblindur fyrir ágöllum hennar. Hún var lýtalaus,
-— hvorki meira né minna. Þar á ofan var hún ímvnd alls
þess, sem fagurt getur talizt. Um þá liluti þýddi ekki að
deila við hann. Þetta var í hans augum sígildur sannleikur.
Hvernig Heillin á sína blið leit á drenginn, um það fást
varla að svo stöddu fullgildar sannanir. Það eilt er víst, að
ef hann hafði verið horfinn sjónum hennar dálitla stund,
annað hvort af því að hann hafði klifrað upp í plómutré
eða af einliverri annarri jafngildri ástæðu, tók hún á rás
með eymdar- og saknaðarvæli, hljóp i kringum liúsið fram
og aflur, ásakaði hvern sem hún hitti og heimilið í lieild
sinni fyrir hvarf vinar síns — eða var hún aðeins að spyrja
um hann og leita upplýsinga? Að minnsta kosti leið henni
afskaplega illa, þangað til hann kom aftur í ljós, og það lók
þó nokkurn tíma fyrir hann að hugga liana.
HÚN er að verða alveg óþolandi, hænuflónið! hrópaði
faðir drengsins út um opinn glugga vinnustofunnar
— og var æstur yfir trufluninni og hafði týnt geðró sinni
engu síður en hænan: Snúið hana úr hálsliðnum! — en i
hvelli!
Það er hugsanlegt, að alvara orða þessara hafi ekki fylli-
lega samsvarað áherzlu þeirri, er á þau voru lögð, — drengn-
jörð 363