Syrpa - 01.06.1914, Page 9

Syrpa - 01.06.1914, Page 9
í RAUÐÁRDALNUM 199 gamall?1 ,Eg; heiti Coltat, en ekki Collatt, segir hún og brýndi raustina. ,Eg biö á ný mjög auÖ- mjúklega afsökunar, frú Coldhat', segi egósköp hógværlega; ,en sann- leikurinn er sfi, aö okkur írunum hefir aldrei gengiö rétt vel aö nefna ensk nöfn, og eru þau þó óneitanlega falleg'. ,Þú móðgar mig‘, segir hún; ,eg heiti Coltat — Coltat — COLTAT!‘ Og hún sagði þaö svo hátt, aö mig næstum sveiö í eyrun. ,Jæja þá‘, segi eg; ,verndi mig allir heilagir ! En eg skal glaöur játa þaö frú Coldheart, eöa Coldhart,eöa Coldart, eða hvaö þú heitir, að mér er allsendis ómögulegt að nefna nafniö þitt rétt ! ‘ — Og meö það fór hún. Og þér að segja, þá vildi eg óska, aö vinur okkar, hann Arnór, yröi ekki seinni maöurinn henar; þó eg efist ekki um, að hún yröi honum góö eigin- kona. En nafniö bennar — það er meira en nóg til aÖ drepa hvern sannkristinn mann !“ ,,Var þaö bara þetta, sem þú ætl- aöir aö segja mér?“ sagöi eg. ,,Nei, sonur minn góður, það var mikið markveröara. Þaö var viö- víkjandi stórkostlegu leyndarmáli, sem eg er oröinn ílæktur í“. ,,Og hvernig er þaö ?“ sagöi eg. ,,Eg held aö eg veröi aö hætta við aö segja þér þaö núna, sonur minn“, sagöi O’Brian og brosti kímilega, því það þarf langan tíma til aö skýra frfi því. En svo mikiö get eg sagt þér, að eg hefi nýlega séö mjög kynlegt letur fi vegnum í svefnherberginu mínu — einskonar ,Mene, Tekel, Peres'. En eg sá ekki höndina, sem skrifaöi þaö. Samt er eg næsta skelkaöur eins og Beltsasar konungur foröum, ogþarf að fá einhvern Daniel til að þýöa þaö fyrir mig. Og vona eg, að þ ú veröir til þess, því þ ú ert fremur spámannlegur ásýndum, og segi eg þaö ekki þér til fimælis“. ,,Eg skil þig ekki almennilega, herra O’Brian", sagði eg og horföi beint framan í hann. ,,Og eg furða mig ekki á því“, sagði hann og klóraði sér undir hökunni, ,,því eg skil mig ekki sjálfur. En þegar viö höfum betra næöi, skal eg segja þér nánar frá þessu stórmerkilega leyndarmáli. Og ef til vill læt eg þaö dragast þangað til vinur minn, hann Arnór, er oröinn heill heilsu. Með aðstoö ykkar beggja vona eg aö geta leyst þenna furöulega Gordions-hnút, eÖa meö öörum oröum: lesið hið dular- fulla letur fi veggnum. Hann klappaöi vingjarnlega á öxl mína og gekk svo ofanstigann. Eg horfði á eftir honum og sfi, að hann hristi höfuöið ofurlítið viö og viö, eins og hann væri hissa á einhverju. Það hafði eg aldrei fiður séð hann gjöra. Og eg fór að brjóta heil- ann um þaö, hvort þaö gæti átt sér staö, að hann hefði ekki veriö aö spauga, þegar hann mintist á letrið á veggnum. En lijfi gamla O’Brian var gaman og alvara jafn- an svo nfitengt hvort öönt, að mér og mínum líkum var þaö ofvaxið, aö gjöra þar fi nokkurn greinarmun. Eg þóttist samt vita aö hann ællaði aö segja mér eitthvaö, en hvort þaö var alvarlegt eöa ekki, varö tíminn aö leiöa í ljós. Reyndar gaf eg þessum undar- legu oröum garnla O’Brians fremur lítinn gaum, því allar hugsanir mín- ar í þaö sinn, snerust utan um frú Colthart og Arnór og leyndarmál

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.