Syrpa - 01.06.1914, Síða 15

Syrpa - 01.06.1914, Síða 15
í RAUÐÁRDALNUM 205 vita hvað hún vill gjöra fyrir mig, ef eg flyt mig vestur þangaö. En fari eg vestur þá veröur þaö ekki fyr en seint á næsta sumri. — Viö skul- um bíöa og vona, og vona og bíöa!“ Og hún sagöi síöustu oröin svo inni- lega og blíðlega, að mér fanst eg geta elskaö hana af öllu hjarta. 23. Dcsernber Því lengur sem eg kynnist ungfrú Trent, því yndislegri og elskulegri finst mér hún vera. Aö kynnast henni og tala viö hana, er í sjálfu sér æðri mentun. Þaö er aödáanlegt hvað hún er vel aö sér í bókmentum þjóðar sinnar að fornu og nýju, og hvaö dómgreind hennar er þroskuð og smekkurinn næmur fyrir öllu, sem er fagurt, satt og gott. Og þó hefir hún aldrei komið inn fyrir dyr á æðri skóla. En mér er sagt (og þaö mun vera rétt) aö konur meðal alþýðu í Ameríku séu yfir höfuð upplýstari en karlmennirnir. Enda er kvenfólkiö í öllum löndum betri hluti mannkynsins. Þaö er ekki eins eigingjarnt og karlfólkiö, er göfugra í insta eöli sínu, er viÖ- kvæmara og móttækilegra fyrir fagr- ar listir og sanna mentun, og hefir hjartað á réttum staö. Öll siðfágun heimsins er konunni að þakka, því sérhver mikill siöbótar- maöur hefir átt góða og göfuga móður, sem kendi honum að elska hið fagra og góða, og hvalti hann til aö leita hins sanna og háleita. — í fyrradag gaf ungfrú Trent mér góöa enska oröabók og ljóömæli Tennysons. „Lestu ,Enoch Arden'' “, sagði hún; „Það kvæði er bæði fag- urt og heilnæmt, eins og alt eftir Tennyson, því hann er svo hrein- hjartaður11. Og þegar eg kom heim, þá las eg „Enoch Arden“ af kappi. En — eg las líka Mand“. — Hví lagði hún svo mikla áherzlu á það, að eg læsi Enoch Arden ? Því baö hún mig ekki heldur að lesa Maud? Það kvæöi á einhvern veginn betur við mig. „Gakk inn í garðinn, Maud; Við garðshliðið bíð eg einn“. Og fuglarnir æptu og kölluðu: ,,Matid, Maud, Maud, Maud! l — Eg vildi aö ungfrú Trent heföi heit- iÖ Maud. 19. Marz 1882 Ungfrú Trent hefir gefiö mér leyfi til að kalla sig Edna. Mig langaöi til að biöja hana að leyfa mér að kalla hana Maud. Skrítið, livaö mér þykir það nafn fallegtl — Síöastliöið sunnudags- kvöld fór eg með henni í fyrsta sinni til kirkju. Á heimleiðinni kallaði hún mig Anior, en ekki Mr. Berg, eins og að undanförnu. Hún sagði mér þfi, að hún væri fastráðin í þv.í, að fara vestur til Winnipeg. Móð- ursystir hennar (hún heitir frú Colth- art) hefir þegar svarað bréfi hennar, og hvatt hana til að koma. En ekki býst eg við að viðgetum lagt afstað fyr en seint í sumar. 2. April. í fyrra kvöld mætti eg á götunni einum yfirmanni lögregluliösins. Hatm spurði mig hvort eg væri bú- inn aö finna stúlkuna, sem eg hefði verið aö leita að. Eg sagöist hafa fundiö hana í haust. Honum þótti þaö skrítiö, að eg skyldi ekki hafa sagt frá því á lögreglustöövunum, fyrst eg heföi leitaö þangaö liöveizlu á annaö borö. Hann sagöi aÖ þaö væri aö fara aftan að siöunum. —

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.