Syrpa - 01.06.1914, Síða 23

Syrpa - 01.06.1914, Síða 23
ÍSLENZKAR ÞJÓÐSAGNIR 213 hann naumast hafa sloppiö úr heljar- greipum, á þeirri voðalegu brenni- varga öld. Þeir voru dregnir fyrir lög og ctóm, og varpað á bállcöstinn er minna voru kunnir aö fjölkingis- brögöum en hann; t. d. Jón bróöir Þorv. Rögnvaldssonar á Sauöanesi og margir fleiri, er líflátnir voru fyrir tóma grunsemi. II. Þorleifur var kvongaður maöur, og átti fjölda barna. Varþvíjafn- an þröngt í búi, sem von var. Varö hann þá oft að beita brögðum og kunnáttu til aö hafa eitthvað að éta. Kona Þoleifs var skáldmælt vel, og lit|u rniður fær í þeirri list enn hann sjálfur, og þótti þó Þorleifur enginn viövaningur. Innarlega í ísafjarðardjúpi liggur skerjagaröur frá suðurströndinni langt norður í djúpið, sem kallaöur er Brekskér. Á skerjabálk þessum strandaði eitt sinn Franskt skip og brotnaði í spón. Sumir segja að það væri ræningjaskúta, en áðrir aö það væri fiskiveiöaskip. Þáneytti Þorleifur kunnáttu sinnar, og lét alt sem matbjörg var í, fljóta til lands. Sagöi hann þá konu sinni frá rek- aldinu, og bað hana fylgja sér til strandar að bjarga því undan sjó. Þá kvað hún þetta: Vinn eg ei fyrir vín og brauð vandra með þér niður á sand ,frýs mér hugur við frönskum auð fjandinn hefir hann sent á land. Þorleifur hló, og kvað ekki saka myndi, enda hvor sem hefði fleytt því að landi guð almáttugur eða ó- vinur mannanna. Líklegt er að Þorleifur hafi svar- að í sama tón, og vísan sé gleymd. III. Á dögum Þorleifs skálds Þórðar- sonar, voru ræningjar oft á sveimi kringum íslandsstrendur, oggjörðu þar spellvirki hér og hvar; stálu fé og rændu mönnum eöa drápu. Þeir voru sannkölluð plága frá hafinu, er vakti ógn og skelfingu hvervetna. Landsmenn voru þá algjörlega varn- arlausir til að mæta þeim ófögnuði. Þá rændi Bullufranki, gamall og þaulæfður sjóramingi á Vesturlandi. í fornum frásögum eru þeir kallaðir hvalveiðamenn frá borginni Gas- kóna á Spánarströndum. Byrjuðu þeir að ræna í Aðalvík og héidu það- an suðureftir, en tóku sér loks fast aðsetur í Æðey á ísafjarðardjúpi, og og reistu þar skotvirki mikið og ramgjört, og þannig útbúið að skjóta mátti frá því til allra hliða, og sjá ef óvinir sæktu að. Þá höfðu þeir rænt Jökulfjörðu alia, Grunna- vík og Snæfjallaströnd. Frá virki sínu sóttu þeir til rána í allar áttir. Þóttu þeir hinir ægilegustu vogestir og flýðu menn undan í stór hópum. Þá var eina úrræðið að leita til Ara í Ögri, sem yfirvalds, og hins eina manns í sýslunni, er hafði dug og á- ræði að veita þeim viðnám, og rétta hlut sýslubúa. Ara leist illa áblik- una, því hann hafði frétt svo niargt af atferli Bullufranka og hernaði hans, að hann áleit hann vera sitt ofurefli. Þó safnaði hann miklu liði hvaöanæfa. Oft var þörf en nú var nauðsyn að leita Þorleifs og fá hann til að vera fyrirliða í atföririni. Þor- leifur ;',ók þeirri málaleitan vel, en kvað mannsafnað þann vera alveg þýöingarlausan. Mér væri naumast við mann að eiga, því Bullufranki væri bæði grimmur, slægvitur og fjölkunnugur og í alla staði hinn

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.