Syrpa - 01.06.1914, Síða 60

Syrpa - 01.06.1914, Síða 60
250 SYRI’A get sagt yöur það með sarini, að eg veit ekkert með vissu um þetta, en þó er það grunur minn, að þér mun- ið verða nokkurs vísari, ef þér snú- ið yður til þess manns, sem eg vísa yður á“. Síðan nefndi hann nafn mannsins, — en eg held það sé best að þegja yfir því —. Þegar Kífi kom til hans, fór alt á sömu leið, og svo koll af kolli. Fór því fram í marga daga, að hann gekk frá einum til annars. Allir voru þeir í nýjum klæðnaði, og óku í nýjum vögnum, og áttu ný og skrautleg hús til íhúðar. Þeir voru líka glaðir og ánægðir, en þó brá þeim jafnan, er Kífi skýrði frá erindi sínu. ,,Eg er áreiðanlega á réttri leið“, hugsaði Kííi. „Þessir fatnaðir og þessir nýju vagnar eru alt gjafir púkans i flöskunni; og þessir menn sem eru svona glaðir og ánægðir, eru þeir sem vel liafa kunnað að nota flöskuna sér til hagsmuna, en losnaö svo við hana meðhægu mótj. Þegar eg sé fölar kinnar og heyri þung andvörp, þá veit eg, að flask- an er ekki langt undan landi“. Loks vildi svo til að honum var visaö á hvítan mann, sem bjó í Ber- itaniagötunni. Hann kom heim til hans síðla dags, um það leyti, sem venja var bot garmanna að eta kveld- verð. Hann sá þegar öll sömu merki auðlegðar og velmegunar, sem hann hafði séð, þar sem hann hafði komið áður þar í borginni. Húsið var ný- legt og garðurinn nýsáinn, og raf- magnsljósin ljómuðu í hverjum glugga. En þegar Kífi hitti húsráð- andann, barðist vonin og óttinn í brjósti honum. Það var ungur mað- ur. Andlitið var nábleikt, og svartir hringir um augun; hárið ógreitt og alt í sneplum.og svipurinn og augna- ráðið var eins og svipur og augna- ráð þess manns, sem bíður eftir Iíf- láti sínu. ,,Hér er flaskan áreiðanlega11, hugsaði Kífi með sér, og hann hirti ekki að draga dul á erindið. ,,Eg er kominn til þess að kaupa flösk- una“, mælti hann. Húseigandinn riðaði áfótunum og hröklaðist út að herbergisvegnum, þegar Kífi nefndi flöskuna. ,,Flösk- una ! Til tið kaupa flöskuna !“ stundi liann. Það var eins og hann ætlaði að kafna. Hann greyp í liand- legginn á Kífa, og dró hann með sér inn í næsta herbergi, helti víni á tvö glös, og bauð honum ;tð drekka. ,,Skál“ sagði Kífi, því hann hafði áður verið mikið með hvítum mönn- um. ,,Já“, bætti hann við, ,,eg er kominn til þess að kaupa flösktina. Hvað kostar hún núna?“ Húsráðandinn misti glasið, og starði á Kífa, eins og hann væri afturganga. ,,Hvað kostar hún ! Veiztu ekki hvað hún kostar?“ sagði hann. ,,Eg er einmitt að 'spyrja yður hvað hún kostar“, svaraði kífi. ,,En hversvegna verður yður svo mikið um þetta ? eru nokkrir annmarkar á um verðið ?“ ,,Verðið hefir mikið lækkað síðan þér áttuð flöskuna, lierra Kífi“, stundi hann loks upp. ,,jæja, því mitina þarf eg að borga“, sagði Kífi. ,,'Eöa livað hafið þér gefið fyrir flöskuna ?“ ,,Tvö cent“, svaraði húseigand- ínn, og fölnaði í framan. ,,Hvað eruð þér að segja?“ kall- aði Kífi upp yfir sig; ,,tvö cent.

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.