Vekjarinn - 01.12.1903, Page 21

Vekjarinn - 01.12.1903, Page 21
21 segja, — barnið hafði skrökvað, og jeg, sem var pabbi þess, vildi ekki sjá það í 3 daga; og þær 3 nætur vakti jeg í stað þess að sofa, og var að hugsa um þessi sorglegu ósannindi, og jeg sagði: „Drott- inn, drottinn, væri það ekki betra að hann væri dáinn?“ En þegar jeg festi svefninn undir morgun örmagna af þreytu, þóttist jeg heyra vingjarnlega en ákveðna rödd, sem sagði: „Jeg bið þig ekki um að taka þá úr heiminum, heldur að þú varðveitir þá fyrir illu.“ — Jeg kann- aðist þá við að það var Jesús, og jeg sá að jeg hafði syndgað, já jeg einnig, þar sem jeg var að kvarta yfir að syndarinn skyldi ekki hafa verið tekinn burtu úr heiminum. Þegar jeg svo reis á fætur, heyrði jeg að einhver hafði ekka rjett fyrir utan dyrnar. Jesús, sem hafði talað við föðurinn, hafði einnig snortið hjarta sonarins. Jeg fyrirgaf syndar- anum, og við sáum báðir að Drottinn hafði einnig fyrirgefið honum. Það var Jesú að þakka, það var jólunum að þakka! Börnin mín, þið munuð öll komast í hinn stað- inn, sem jeg talaði um, ef þið eruð ekki þegar kom- in þangað; út í skóginn, þar sem þokan er, úlfarn- ir, bjarndýrin og höggormarnir. — Þessi skógur er heimurinn! — Þar mætið þið öllum óvinum sálna ykkar, sem ýmist fela sig eða koma í Ijós og öskra gegn ykkur. Stundum munuð þið ekki þora að hreyfa ykkur, stundum ganga gegn hættunni í blindni, já og stundum sofna í friði syndarinnar, sem er jafn hættulogur og hann er falskur. En það er einn,

x

Vekjarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vekjarinn
https://timarit.is/publication/500

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.