Vekjarinn - 01.12.1903, Síða 44

Vekjarinn - 01.12.1903, Síða 44
44 nokkur orð um jólagjöfina miklu og hvað við gæt- um gefið Drottni aptur. Gleðin og Friðurinn gagn- tóku hjörtu allra. Lof og þakkargjörð steig í hæðir. Þau komu að fátæklegu húsi, þar sem lá gömul kona í rúminu. Það var enginn maður hjá henni, en andi Drottins var að hreinsa hjarta hennar og benti þeim óðar að koma inn. Pau ljetu ekki segja sjer það tvisvar. Rjett á eptir kom ungleg kona inn til gömlu konunnar með ýms matvæli og 2 jólakerti, sem hún kveikt.i á og setti á borðið. „Hvernig líður yður núna? Leiðist yður ekki?“ sagði hún. „Jeg þakka yður fyrir að þjer komuð til mín. Mjer líður annars vel og leiðist ekki. Jeg hef verið óróleg að undanförnu og ekki vitað fyrir vist, hvort Guð hefði tekið mig í sátt við sig. Svo var jeg að biðja í kvöld, biðja Jesúm að koma í hjarta mitt og taka burtu allan kvíða og efasemdir, og þá var eins og jeg fengi allt í einu bænheyrzlu, mjer fannst himininn svo nærri og jeg varð viss um að Guð lítur ekki framar á synd mína, því að blóð Jesú Krists, hreinsar af allri synd.“ „Guði sje iof,“ sagði unga konan. „Jeggeymdi að ózka yðnr gleðilegra jóla þangað til jeg vissi, hvernig yður liði, on nú sje jeg að við getum lofað Drottin og vegsamað hann sameiginlega. Svo kraup húu niður við rúmið og bað;

x

Vekjarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vekjarinn
https://timarit.is/publication/500

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.