Vekjarinn - 01.12.1903, Blaðsíða 46
biblíuprantunar, 110 útgáfur af bihlíunni á ensku
ólíkar að stærð o. fl., koma þar út. Að prentuninni
starfa 650 manns, einum þeirra voru boðnir 20
þúsund dollarar til að láta óviðkomandi mann fá
fyrsta inntarkið af endurskoðuðu biblíunni, en hann
hafnaði boðinu. Áður en þeirri prentun var lokið,
voru lcomnar yfir milljón pantanir. Biblían, sem
Gladstone hjelt á og gat sagt um að hún hefði verið
prentuð og bundin eptir síðasta miðnætti, var frá
þessari prentsmiðju. Hvaða bók veraidar skyldi vera
jafnmikileptirsókneptir?. —Hvað verður úr „hreysti-
yrðum" vantrúarmanna, sem segja að biblíukristin-
dómur sje hjáliðinn meðal menntaþjóðanna? — Vol-
taire fullyrti í vantrú sinni að biblían yrði hvergi til
nema á gömlum bókasöfnum eptir 100 ár, Nú er
húsið, sem hann bjó í, fullt af biblíum.
Rannsóknardómuiinn katólski reyndi í lengstu
lög að kúga menn með píslum og báli til að hætta
að lesa í biblíunni, svo þeir sæu ekki villumyrkrið
katólska. Evangeiiska biblíufjelagið á Spáni hefur',
nú keypt gömlu rannsóknarhöllina í Madríd með
öilum fangelsunum illræmdu, og hefur fyllt þau með
biblíum, sem smám saman er verið að dreifa út
um Spán.
Biblían ryður sjer til rúms í heiðingjalöndum,
þrátt fyrir allar hrakspár og útreikninga vantrúar-
innar. Fyrstu 9 mánuði ársins 1902 seldust í Kína
22,362 gamla testamenti og 802,871 nýja tostamenti.
Árið áður seldust þar ekki nema 357,491 irmtök
fa testamentum á sömu mánuðum.