Nýjar kvöldvökur - 01.12.1906, Blaðsíða 3
I. árg.
Nýjar kvöldvökur,
sem út verða gefnar af hlutafélagi á
Akureyri, byrja í dag göngu sína út
um landið. Útgefendurnir vænta þess
að þeim verði víða vei tekið og óvíða
úthýst.
Nýjar kvöldvökur ætla einu sinni
í mánuði að heilsa á heimilum í kaup-
stöðum og sjóþorpum, og bjóða gott
kvöld á sveitabæjum út með ströndum
og fram til dala. Svo er og fyrirætl-
un þeirra að bregða sér vestur um haf,
og reyna á gestrisni manna í bygð-
um og borgum hinnar auðugu heims-
álfu.
Nýjar kvöldvökur ætla ekki að
berast mikið á, en koma fram sem
friðsömu og háttprúðu riti sæmir. Þær
búast ekki við að verða málafylgjurit
eða merkisberi fyrir neina vissa stefnu.
Aðalstarfið verður að færa sögur inn
á heimilin til lesturs á kvöldin, eftir
störf og snúninga dagsins. Við og við
vilja þær flytja kvæði; og þáttur um
bókmentir verður í flestum heftunum,
eitthvað um uppgötvanir og nýjungar,
er fram líöa stundir.
Nýjar kvöldvökur vilja þola rétt-
mætar aðfinningar, og taka vingjarn-
legum bendingum með þökkum. En
eina kröfu gera þær, og hún er sú,
að vera eigi taldar óþarfa varningur
eða einskis nýtur húsgangur. Fólk vort
er sögufólk, og sú bezta hressing og
nautn, sem það fær eftir hita og þunga
dagsins, er að hlýða á eða lesa sögur.
Þetta er hollari hressing en margt
annað, sem um hönd er haft, og um
leið oft meira fræðandi og mentandi.
Og þeir mentunarmolar, sem í sögun-
um finnast, gera mikið gagn, af því
þær eru víða lesnar. Af sömu ástæð-
um geta þeirra siðferðislegu áhrif orðið
töluverð.
Nýjar kvöldvökur hafa fengið
loforð um aðstoð fimm ritfærra manna
á Akureyri, og óska eftir aðstoð enn
fleiri. Fyrir vel þýddar sögur og kvæði
eru borguð þýðingarritlaun ef tekið er
í ritið. Fyrir frumsamdar sögur hærri
ritlaun. Þeir sem vilja senda sögur
og kvæði snúi sér til útsölumanns eða
Þórhalls prentara Bjarnarsonar.
Útgefendurnir.