Nýjar kvöldvökur - 01.12.1906, Blaðsíða 21

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1906, Blaðsíða 21
NÝJAR KVÖLQVÖKUR. 19 urinn enginn annar en sá, að hræða aumingja stúlkuna; þegiðu Bennie, mér er sania hvað hún hefir sagt, þetta er ykkur til háborinnar skammar og mig sárlangar til að refsa ykkur báðum fyrir að raska heimilisfriði í húsi mínu«. Jak fann að hann hafði lokið hlutverki sínu, þótt það hefði haft annan árangur en ætl- ast var til, fann að það var bezt fyrir sig að þegja, og afsakanir myndu að engu gagni koma. Pegar gamla manninum var sagt frá, að Aðal- heiður hefði gripið innbrotsþjófinn og haldið honum eins og barni, þar til hann varð að leggja frá sér skrínið, mýktist skap hans og hann fór að skellihlæja. < Ha, ha, Aðalheiður, telpan mín«, sagði hann. Rið getið reitt ykkur á að sérhver, sem reynir að hræða hana mun homast í hann krappann, telpunni er ekki fisjað saman. A lögreglustöðinni varð að sjóðaupp sög- una að nýju, til þess að gera liana sem sak- leysislegasta. Og liðsforinginn, sem til allrar hepni var gagnkunnugur yfirmanninum, gekk nú ótrauður fram í því að miðla málum. Alit- legri peningaupphæð hafði verið stungið að lögregluþjóninum, og þótt að hann botnaði enga ögn í þessu háttalagi, lét hann sig það engu skifta, þar til þessir þrír undarlegu menn höfðu ekið brott. Um leið og vagninn ók frá lögreglustöð- inni, gægðist sköllóttur rnaður með gleraugu út úr hornhúsinu rétt hjá, og benti lögreglu- þjóninum að finna sig. Petta var næturfregn- ritari morgunblaðsins og var nú að fiska upp hvað um væri að vera. Þegar þeir frændurnir komu heim var Að- alheiður enn á fótum. Hún var þeiin mjög þakklát fyrir að hafa séð fyrir ræningjanum. »Eg er svo glöð yfir því að við losuð- umust við hann án þess að nokkur særðist, það er óttalegt að hugsa ef til blóðsúthellingar hefði komið. Eg héit fyrst að þetta mundi vera voðalega ljótur maður. En eftir að hann misti grínnma og þegar hann gafst upp, sýndist mér hann bæði fríður 'og karlniannlegur, og svo bar hann sig eins og konungborinn maður. Veslings maðurinn, skyldi hann nú þurfa að verða lengi í fangelsi. Eg vona ekki. Eg held hann sé göfugmenni þrátt fyrir alt. Ó, hvað eg er gæfusöm að hafa gimsteinaskrínið mitt óskemt«.— * * * Morgunin eftir þennan viðburð reis Benn- ie nokkuð seint úr rekkju, morgunverðurinn beið hans á borðinu og hann át hann aleinn. Að því loknu rekaði hann inn í dagstof- una, Rar sat Aðalheiður og var að lesa Morg- unblaðið. «Til hamingju með heppileg úrslit á næt- urbrugginu«, sagði hún þurlega. Hjartað í Bennie fór að síga niður á við. »Var það einnig fyrirfram ákveðið, að þessi sómasamlegi leikur yrði birtur í blöðunum?« spurði hún enn fremur. Bennie ræfillinn þorði ekki að svara, fyr en hann var búinn að lesa það sem stóð í blaðinu. Þar stóð nú alt, sem fram hefði far- ið og töluverð viðbót, frá öllu sagt mjög hlægi- lega og ertandi, í blaðinu hljóðaði sagan hér- um bil svona: »Unnusti nokkur hafði veðj- að við uunustu sína að hann skyldi fyrir ákveðinn tíma geta fundið gimsteinaskrín hennar, hversu vel sein hún feldi það, og koma í það fáeinum ódýr- um steinum er hannátti; með aðstoð bróður unn- ustu sinnar náði hann skríninu að næturþeli, en þá kom ungfrúin til sögunnar og lokaði bróðurinn inni í herbergi nokkru, en tók sjálf unnustann höndum og hélt honum föstum, þar til lögregl- an kom oghann varð að láta af hendi skrínið, án þess að koma fram áformi sínu, um að koma ódýrum steinum í það«, Aðalheiður var rólegri yfir öllu þessu, en Bennie gat búist við, hún tautaði eitthvað um hugsunarleysi og strákapör í því líku háttalagi. »Eg ætla ekki að spyrja þig að hvaðatil- gang þú hefir haft með þessu heimskulega uppátæki, bæði af því eg veit að þú kæmist í mestu vandræði að svara því, eins af því ég 3*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.