Nýjar kvöldvökur - 01.12.1906, Side 8

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1906, Side 8
6 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Hann keptist við að Iesa, en tók þó eng- um framförum. Kennarinn þreyttist aldrei á að hjálpa honum; honum geðjaðist svo vel að litla drengnum, sem var svo hlýðinn og hæg- látur, og gerði auðsjáanlega alt sem í hans valdi stóð. «Hlæið ekki að honum. Hann hefir fátt lært, og hefir fremur litlar gáfur, en hann neytir þeirra með svo mikilli iðni og ástundun, að hann gerir inörgum ykkar skömm, sem meiri hæfileika hafið, en lærið þó ekkert, af því að þið eruð löt og athugalaus við námið, ódæl og ógegnin. Rið ættuð að skammast ykkar.» Þau hafa að líkindum ekki skammast sín, en Egill skammaðist sín. Gat hann ekki lært eins og hin börnin? t*að hlaut svo að vera fyrst kennarinn sagði það. Ressi orð kennarans særðu hann meira en alt háð og allar ertingar skólabarnanna. Rað sern hann átti að læra, las hann hvað eftir annað af mesta kappi, en lionum gekk svo illa að læra það orðrétt. Oft hélt hann að hann kynni það alt reiprennandi, en þegar í skólann kom, var hann búinn að gleyma öllu. Stundum gat hann ekki borið orðin rétt frain. þó að kennarinn liefði þau skýrt upp fyrir hon- um. Hann vissi hvorki í þennan heim né ann- an, skildi ekkert og sá ekkert. Rað var eins og hann horfði inn í kolsvarta þokuna uppi á óbygðri heiðinni. Skólakennarinn horfði á hann meðaumk- unaraugum, brosti vingjarnlega, klappaði á kollinn á honum og sagði: «Veslings litli drengurinn, þú lærir ekki mikið!« Agli fanst hönd kennarans liggja sem bjarg á höfði sér; meðaumkunarbrosið brendi hann eins og eldur, og orð hans ollu sviða eins og vandarhögg, miklu meiri sviða, en þegar fað- ir lians hýddi hann einu siuni á bert bakið. Kennarinn aumkaði hann og skólabörnin hæddust að honum. Hann fann svo sárt til þess. Óvirðingin beygði hann og Iamaði. Eins og trén í skóginum bogna undir snjóþyngsl- unum, en brotna þó ekki, eins bugaðist liann af lítilsvirðingunni. Honum fanst hann verða æ minni og vesalli. Stundum voru hin börnin ísvo góðu skapi, að þau vildu hafa Egil meðí leikjunum og kenna honum, og þá reyndi hann að leika sér með þeim; en það gekk ekki. vel. Hann var svo ráðalaus, og fór svo ófimlega að öllu, að hann flæktist fyrir hinum, sem í leikjunum voru, og alt fór út um þúfur. Svo urðu þau Ieið á því að hafa hann með. «Farðu inn aftur,» sagði Ólafur í Asi einu sinni við hann, «þú stendur hér og glápir eins og magra kýrin hans Faraós.» Allir fóru að skellihlæja. Og svo var hann um tfma kallaður «kýrin hans Faraós.» Einn góðan veður-dag sagði Níels: «þetta er ekkert nafn, það er bæði stirt og klaufalegt. Eg er búinn að finnabetra nafn handa honurn, og nú skulum við skíra hann og gefa honum það nafn.» Síðan var Egill tekinn og borinn inn í eldiviðarskálann og lagður á fjalhöggið. «Lítið þið nú á hann, drengir», sagði Níels: «hann er ekki annað en bót á bót ofan allur saman. Það er ekki okkar meðfæri að reikna það út, hve margar bætur eru á fötunum-hans, og eg held að kennarinn gæti það ekki heldur. Af þessu skal hann nafn sitt hljóta.« «Merktu nú Rórshamar yfir honum, Ólafur. Larfi skal hann heita í nafni Óðins, Rórs og Baldurs.« «Góðan daginn Larfi! Velkominn vor á meðal! En nú vantar hann gjafirí nafnfesti, drengir!» Öllum þótti þetta hin bezta skemtun, og nú voru allir vasar hans fyltir af hnöppum, ritsteinum, blýantsstúfum og steinvölum. Egill sagði ekki neitt, og grét ekki með- an á þessu stóð, en þegar hann kom inn aft- ur, setti að honum ákafan grát með þungum ekka. Hann gat ekki einu sinni stilt sig, þegar kennarinn kom. Kennarinn vissi þegar að eitthvað mundi

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.