Nýjar kvöldvökur - 01.12.1906, Síða 11

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1906, Síða 11
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 9 Hann var það eina eigulegt sem hann átti nú orðið. En var það tiltök, að honum dytti í hug að skilja sig við hann? Já — nauðsynin stóð frammi fyrir honum og sagði: myndina eða hundinn. Með mynd- inni hefði hann sagt skilið við sjálfan sig og list sína; köllun hans, hugsjón listarinnar stóð þar gagnvart hundinum. «Sjáifsafneituniu betrar», sagði hann við sjálfan sig. Og hann neitaði sjálfum sér. Skynsemin vann sigur — hjartað varð undir í þeim leik. Þetta var á sunnudag. Hundamarkaður var haldinn fyrra hluta dags. lJað var eins og Cæsar vissi, hvert lianu ætlaði að fara. Hann nam staðar við og við á hlaupunum, horfði áliyggjufullur á húsbónda sinn og daðraði róf- unni hægt. Það hefir líklega verið kulda biíran og fjúkið, sem hreyttist úr ioftinu, sem hafði þessi áhrif á hann. Svangur var hann ekki. Húsbóndi hans hafði keypt brauð um morguninn fyrir sein- ustu aurana, sem hann átti til, og gefið hund- inum það; sjálfur hafði hann ekki lyst á því. Magnlaus og þrotinn að kröftum, eins oghann var orðinh, hafði hann varla við hundinum, Málaranum fanst hundurinn vera að flýta sér tii þess að bjarga sér, og væri að spyrja, hvort þeir væri ekki komnir alla leið. Jú, það var svo. Löng, mjó, súgmikil búð með berum veggjum, og opnar dyr á báðar hliðar. Y1 og væl heyrðist þaðan út á stræt- ið. Hundarnir stóðu þar, nötrandi af kulda, og héldu sér fast við húsbændur sína, og biðu þess er í skærist. Max Odrich lagði bandið, sem hann hafði tekið með, um hálsinn á Cæsari og teymdi hann inn í þessa leiðinlegu búð. Hann fékk tilboð úr allmörgum áttum, en verðið, sem boðið var í seppa, var alstaðar smánarboð. Það voru ekki kaupendur, heliltir fólk, sem ætlaði sér að græða á kaupunum, af því að auðséð var, að maðurinn ætlaði að selja hundinn út úr neyð. En Max vissi, hvers virði hundurinn hans var, og hefði aldrei látið hann fyrir það verð, ekki sín vegna, heldur hunds- ins vegna sjálfs; honum fanst hann vanvirða hundinn með því. Nei, heldur þá að svelta með honum. Hann fór aftur út úr búðinni; hann þoldi ekki við innan um þetta fólk, enda voru fáir sem föluðu seppa. Við dyrnar mætti honum kona ein, ung og tíguleg, klædd einföldum búningi, aldökk- um; bar núkið á mismuninum, því að andlitið var nett og fölt. Augun voru dökk og hálf- þreytuleg, og hörkudrættir voru í kringum munninn, eins og hún hefði reynt mikið, og yfirbragðið var alvarlegra en ætla mætti um svo unga konu. Rjónn var með henni, sem bar körfu í leðuról. Þegar konan sá hundinn, var eins og hún yrði hálfhissa. Hún vatt sér að þjóninum og sagði: «Er það ekki eins og liann Zeppa okk- ar veslingur væri þarna lifandi kominn? En eg býst ekki við því. Eftir heilt missiri er varla þess að vænta að hann finnist aftur». «Hver veit, náðuga ungfrú* svaraði þjónn- inn, „hafi honum verið stolið, en liafi hann ekki drepist, má vel vera að hann finnist aftur. Það verður bara að hafa augun hjá sér». Konan gaf honum leynibendingu með aug- unum, að tala ekki meira. Svo sneri hún sér að málaranum, sem var í þann veginn að fara fram hjá henni, en nam þó staðar við að sjá hana og stóð ögn við. «Er það leyfilegt, herra minn, að líta ögn betur á hundinn yðar? Rér ætlið víst að selja hann — er ekki svo?« í stað þess að svara tók Max Odrich ofan barðabreiða hattinn sinn. Rað var ekki lotning, heldur óskiljanleg tilfinning sem knúði hann til þess. Hann stóð litla hríð með hattinn í hend- inni, og tautaði í hálfum hljóðum: < Eg má til». Hún kiukaði kolli. cRetta er allra falleg- asti hundur; má eg spyrja hvað tíann er kall- aður? Ekki þó Zeppa vænti eg? Cæsar», svaraði málarinn. 2

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.