Nýjar kvöldvökur - 01.04.1908, Blaðsíða 7

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1908, Blaðsíða 7
BEN HÚR 79 letruð þessi orð: «Tekið af víkingum í Evrip- Usflóanum af Kvintusi Arríusi, dúumvír.« 80000 manna horfðu þar á þessi orð. VIII. Nú víkur sögunnu til Antíokkíu, drotningar Austurlanda; hún er voldugastur bær í heimi næst Róm, þó ekki sé hún mannflest. Rað er vant að segja svo, að svall og óhóf þeirrar tíðar hafi runnið frá Róm. Það er ekki msð öllu rétt. Ef vel er aðgætt, má sjá, að siðspill- 'ngin barst frá austurlöndum til vesturlanda, og undirokuðu þjóðirnar höfðu áhrif á sigurveg- arana, og það var ekki sízt Antíokkía, hið forna höfuðból sýrlenzkrar menningar.óhófs og skraut- fýsi, sem gekk á undan í þeim efnum. Það var tímanlega dags í júlímánuði árið 23, eftir kristnu tímatali, að byrðingur einn mikill rann inn af bláu hafinu inn í Orontes- myunið. Hiti var mikill, en samt voru allir Þe'r, er máttu, á þiljum uppi. Reirra á með- a' var Ben Húr. Hann hefir náð fullum karlmannsþroska bessi fimm ár síðan við sáum hann síðast. Hann Var klæddur hvítum línklæðum, sem hjúpuðu f'ann að rniklu leyti, en þó mátti samt vel sjá, hve ágætlega hann var limaður. Haim hafði staðið þar langa stund í forsælunni við seglið. ^msir farþegar, er voru af sömu þjóð og hann, höfðu reynt að fá hann til viðtals, en lítið °'ðið úr. Hann tók kurteislega undir við þá, en ífám orðum, og á latínu. Hann var hinn þekkilegasti í framkomu og kurteis f viðmóti, en 'ét þó lítið á sér bera; urðu menn við það forvitnari um hagi hans. Og svo var eitt: þött hann væri sem hinir ættgöfugustu höfð- ‘igjar í fasi, voru handleggir hans óvenju lang- 'r, og hendurnar undarlega stórar og hrikaleg- ar- Það var líkast því sem hann ætti sér ein- hverja sögu. Qyðingur einn hafði komið á skipið í ein- hverri höfninni, þar sem skipið komvið;hann Var tiginn maður að sjá og mentaður, og mjög góðlátlegur í fasi og viðmóti. Ben Húr hafði gefið sig mikið að honum, og höfðu þeir tal- að lengi saman. Þegar skipið rann inn í Or- ontes, fóru út hjá þeim tvö önnur skip, og drógu þar upp í sömu svipunum mörg ljós- gul smáflögg. Sumir spurðu, hvaða flögg þessi ættu að þýða og varð þá Gyðingur þessi hinn göfuglegi fyrir svörunum; «FIöggin eru merki þess, hver skipin á; það er einn auðugur kaup- maður í Antíokkíu, og eru sjómenn hans van- ir að draga upp gula fána þegar þeir mætast; á það að merkja það, að þeim hafi farnast vel.» «Þekkir þú hann?« «Eg hefi viðskifti við hann, Og er hann varð þess var, að þeir, er í kring stóðu. vildu fegnir fá meira að vita um mann þennan, bætti hann við: «Hann er ákaflega auðugur og þekkja hann því margir, enda hafa margir öfund á honum. Það er margt ljótt sagt um hann. Fyr- ir nokkrum árum var í Jerúsalem «fursti» nokk- ur af ætt einni fornri. er Húr heitir ...» Ben Húr kiptist við, og hann fór að fá hjartslátt. Enn hann gerði alt til þess að stilla sig og vera rólegur. »Fursti þessi var afbragð annara kaupmanna. Hann réðst í stórfyrirtæki, bæði austur og vestur í löndum, og hafði útbú í stærstu borg- unurn. Útbúinu hér í Antíokkíu stýrði Símoní- des nokkur, og var hann fæddur Gyðingur. þótt nafn hans sé grískt. Svo var sagt að hann væri eigi frjáls maður. Furstinn fórst á sjó- ferð, en verzlunarstörfum hans var haldið á- fram, og minkuðu ekki. En svo dundi ógæf- an yfir fjölskyldu þessa; einkasonur furstans var rétt kominn að því að verða fullveðja, en þá veitti hann Gratusi, landstjóra í Júdeu, bana- tilræði, í miðju stræti í Jerúsalem. Rómverjinn hefndi sín á allri ættinni; engum einasta af henni var vægð eða vorkun sýrtd; höll henn- ar var innsigluð og eignirnar gerðar upptæk- ar. Landsstjórinn Iagði þar gullplástur við hruflu sína.» Sumir áheyrendurnir hlógu; «það mun vera sama og hann hafi stungið auðæfunum í sinn sjóð.» »Svo er nú á orði» svaraði Gyðingurinn; «Eg segi bara það, sem eg hefi heyrt aðra

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.