Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Page 3

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Page 3
Olafur Davíðsson þjóðsagna- og náttúrufræðingur. liingan^nr. Það eru nú rúm 30 ár liöin, síöan lokið var æfi eins hins sérkennilegasta íslenzka fræðimanns á seinni hluta 19. aldar, ÖI- afs Davíössonar. Síðan hefir verið furðu Ólafur Davíðsson. hljótt um hann, og aðalritverk hans legið geymd í handriti, og fáurn mönnum Ííunn. En líkt og hann vann verk sitt í kyrrþey, hefur minning hans geymzt hljóðlátlega meðal hinna fáu, er þekktu hann. Eins hafa þeir, er fást við rann- ■sókn íslenzkra fræða trauðlega komizt framhjá því, sem Ólafur hefur þar af N.-Kv. XXVII. árg., 4.-6. h. mörkum lagt, án þess að verða þess var- ir, einkum um allt það, sem snertir menningarsögu hinna síöustu alda. Margir þeirra munu þar hafa notið góðs af starfi hans. Líkt fer og þeim, er sinna íslenzkri grasafræði. í þeim fræðum er nafn Ólafs nefnt svo oft, að það hlýtur að vekja athygli, enda þótt hann hafi ekkert ritað sjálfstætt um þau efni. En þrátt fyrir þetta er hann samt að mestu ókunnur hinni uppvaxandi kynslóð lands- ins. Það hef ég rekið mig oftlega á. Bæði sakir þessa, og svo hins, að nú er að hefjast útgáfa á þjóðsagnasafni hans hinu mikla, hef ég ráðizt í að kynna manninn lítið eitt fyrir lesendum N*. Kv., enda þótt ég finni, að það verði af meiri vanefnum gert, en ég hefði óskað. Æfiatriði. Hin ytri æfisaga Ólafs Daviðssonai' er- hvorki löng né viðburðarík. Hann stóð aldrei í neinni þeirri fylkingu, er heyr þá bardaga, er þjóðin starir á með undr- un og aðdáun. Hann skipaði heldur ekkí neinn þann virðingarsess, sem helgaður er af lögum og landssið. Hann var alla æfi fátækui', hógvær fræðimaður,- sem vann af ást á viðfangsefnunum, »sér til hugarhægðar, en hvorki sér til lofs né frægðar«. Ólafur Davíðsson var fæddur að Felli í Sléttuhlíð hinn 26. febrúar 1862. For- eldrar hans voru: Sigríður Ólafsdóttir Briem og Davíð Guðmundsson,, sem síðar var lengi prófastur í Eyjafjarðarsýslu og sat þá að Hofi í Hörgárdal og þjónaði Möðruvallaklausturskirkju. Voru þau 7

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.