Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Page 8

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Page 8
54 NÝJAR KVÖLDVÖKUR eins framkvæmt svo vel, sem raun ber vitni um, að hann var náttúrufræðingur. Starfssvið hans var eitt af hinum örðug- ustu innan grasafræðinnar, og því engin von þess, að honum tækist á svo skömm- um tíma, sem hann starfaði þar að, bæði að safna og vinna úr söfnunum. Það má teljast fullkomlega víst, að til þessa dags hefur enginn fslendingur haft víðtækari og djúpsettari þekkingu á lággróðri þessa lands en hann. Það tjón,, sem rann- sókn þessara fræða beið við dauða hans, verður seint metið til fulls. »Meira þó í huga hans hvarf með honum dánum«, á ekki sízt við þenna þátt starfs hans. f Þjóðólfsgrein dr. J. Þ., sem fyrr er vitn- að í, tekur hann upp bréfkafla frá Stef- áni Stefánssyni, þar sem svo er að orði komizt: »Þjóðfræði og grasafræði lands- ins mátti heldur ekki vera án hans. Það sem hann hefur unnið fyrir íslenzka grasafræði síðustu árin er ómetanlegt. Hann hefur safnað ógrynni af plöntum, --------og þessu ætlaði hann að halda áfram með þreki því og elju, sem honum var eiginleg«. Það er heldur enginn vafi á því, að í hinum fámenna hópi íslenzkra náttúrufræðinga skipar Ólafur virðuleg- an sess. Vm mannlnn. Eftir hina lauslegu grein, sem nú hef- ur gerð verið fyrir störfum Ólafs, þykir mér hlýða að lýsa manninum ögn nánar eftir því sem efni standa til. Styðst ég þar einkum við greinar þær, sem ritaðar voru um hann látinn, en einnig hef ég þar nokkurn stuðning af munnlegum frá- sögnum þeirra, sem þekktu hann. Óllum, sem Ólafi hafa lýst ber saman um það, að hann hafi verið einrænn, fá- skiptinn og dulur og óglysgj arn úr hófi fram. En jafnframt þessu er viðbrugðið samúð hans með smælinggjunum, hjálp- fýsi og greiðvikni við hvem, sem í hlut átti. Um hjálpfýsi hans segir Einar Kvar- an í nainningargrein í »Norðurlandi« 19. sept. 1903: »Hann hafði svo ríka og næma tilfinningu fyrir þeim, sem bágt áttu, að hann klæddi sig úr fötunum og gaf simi síðasta eyri til þess að gleðja þá og bæta úr böli þeirra; Hann mátti ekkert aumt sjá. Einu sinni sem oftar kom hann hing- að á Akureyri í illu veðri, for var mikil á götunum. Nokkuð fyrir utan hótelið var mannræfill blindfullur, sem stungizt hafði á höfuðið í forina og skaddast svo á höfði, að blóð vall úr sárinu og bland- aðist við saurinn, sem hann var ataður í frá hvirfli til ilja. Allir, sem á horfðu, létu þetta afskiptalaust og biðu þess, að lögreglan tæki manninn. »Ult er þetta«,. segir Ólafur, »ég verð að hjálpa mann- skepnunni, þótt ekki þekki ég hann«. Svo fiskaði hann manninn upp úr forinni, draslaði honurn inn í hótel, þvoði á hon- urn höfuðið eins vel og hann gat, batt um það með vasaklút sínum og borgaði fyrir hann næturgreiðann«. Þá er og barngæðum hans viðbrugðið. f sörnu grein og áður er getið segir Ein- ar Kvaran: »En ekkert opnaði eins ást- ríkislindirnar i hjarta hans eins og börn- in. Barngæði hans voru frábær. Öll börn hændust að honum, og yfir þeim, sem þekktu hann bezt hafði hann svo mikið- vald, að hann gat huggað þau til fulls, hvað sárt, sem mótlætið var. Þau voru heilög í hans augum og máttu ekkert sjá né heyra, sem miður mátti fara. Og allt- af var hann að fræða þau«. Enginn hlutur var Ólafi fjær skapi en- að berast á eða vera hávaðamaður. Fá- orður var hann og stuttorður og virtist oft vera þurr á manninn, en engu að síð- ur var hann gleðimaður á sína vísu, og manna skemmtilegastur í góðvina hóp. Var hann þá einkennilega fyndinn og gagnorður. »Láta hann snara að mér

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.