Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Síða 10

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Síða 10
Helgi Valtýsson: A I Austfjarðaþokunni. (Framh.). IV. Jón gamli á Höfða reri einn á báti, eins og hann var vanur. Sjósóknin var ekki ýkjalöng. Höfðinn liggur norðan- vert við Flóann, og hann var allur eitt óslitið fiskimið, djúpt og grunnt, hvar sem leitað var. Jón gamli hafði engum fullorðnum á að skipa. Börnin voru öll í ómegð. — Svona er að vera seint giftur. Og konan var hætt að fara með honum á sjóinn, síðan börnunum fjölgaði stöð- ugt. Nú lá Jón gamli í þoknnni með hálf- hlaðinn bát. Fiskurinn hafði verið hand- óður um hríð, en var nú tregari með kvöldinu. Hann hafði heyrt í strand- ferðaskipinu, er það var að mjakast fram hjá. Og hann hafði rétt aðeins orðið var við ölduhreyfinguna frá því á lögndauð- um sjónum. Um hríð hafði hann vitað af bátum í kring um sig. Nú var allt horfið og hljótt. Kyrrð og myrkur umhverfis hann á alla vegu. Eins og hann væri al- einn í öllum heiminum. Þokan vafðist þétt utan um hann. Engin átt var fram- ar til. En Jón gamli var vanur einver- unni og myrkrinu. Hann hræddist hvoi'- ugt. Bæði eru meinleysis grey. Það þekkti hann af langri reynslu. Allt í einu hrekkur hann við. Hátt í" lofti yfir höfði hans birtist einhver risa- vera, og ógurlegir vængir blaka hægt og hljóðlaust. Jón gamli bítur á jaxlinn og athugar þetta nánar. Það er reiðinn og seglin á franskri skonnortu. Skrokkurinn er hvítgrár á lit og rennur því alveg sam- an við þokuna. Skipið rekur lrægt með5 sjávarfallinu, og Jón gamli er alveg und- ir hliðinni á þvi. Hann er fljótur að átta, sig. Hann hefur með sér tvær mjólkur- flöskur aukreitis. »Biskví! — Biskví!« kallar hann og veifar flöskunum. Flandrararnir hleypa niður körfu,. sem hann lætur flöskurnar í, og fær hann hana svo niður aftur fulla af Flandrara- kexi. En sú glaðning handa krökkunum og konunni með kaffisopanum! Blessaður matur! — Það er ekki á hverjum degi bakkelsi á Höfða. — óekkí. Það er nú síðúr en svo. — Jón gamli fær enda og bindur bátinn sinn aftan í skonnortuna. Svo hallar hann sér útaf í skutinn og lætur sér renna í brjóst. Hann hafði tekið daginn snemma, og nú hlaut að vera framorðið. Jón gamli hrekkur upp við mikinn há- vaða og háreysti. Margir menn tala ákaft hver í munninn á öðrum. Það er uppi á frönsku skonnortunni aftur á. Háa-rifr- ildi og róstur! Jón gamli rís upp í bátn- um og sér þá skáhallt inn yfir þilfarið. Skonnortan er orðin allhlaðin. Þokan er jafnsvört og áður, en þó sér hann greini- lega, það sem fram fer á þilfarinu. Ungur piltur, ljóshærður og bláeygur, hlær og gasprar og virðist vera að erta roskinn mann svartskeggjaðan og svip- þungan. Nokkrir hinna virðast hallast á sveif með unga piltinum, og öðru hvoru liggur við handalögmáli. Svo segir ungi

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.