Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Síða 12

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Síða 12
58 MÝJAR KVÖLDVÖKUR Þetta er miklu þyngri dráttur en síðast. Og Jóni gamla er rótt í skapi. En ein- kennilega er þetta fjörlaust kvikindi! Hananú! Jón gamli lýtur yfir borð- stokkinn og bregður ífærunni-------- Hvert í ekkisen þó-----------! Segldúksströngullinn liggur láréttur undir borði, og er krækt undir kaðalvafn- ing um miðjuna. Einkennilegur kuldahrollsgeigur gríp- ur Jón gamla. Hvaða bölvaðir galdrar eru þetta og gerningar! — Hvaða dje- skotans myrkravöld leika hér lausum hala í þokunni? — Hann þrífur saxið og heggur á tauminn rétt neðan við sökk- una, sem hann hafði innbyrt. Segldúks- ströngullinn rís hægt upp á endann og stingur kollinum upp úr sjónum, rétt eins og hann sé að gá upp í bátinn til Jón gamla. Svo sekkur hann seint og ó- fúslega. Jóni gamla er ekki rótt. Hann sprengrær eitthvað út í þokuna. Heyrir hróp og köll og blótsyrði á íslenzku og færeysku, er hann þeytist áfram í blindni, eins og f-ælinn hestur, og liggur við hvað eftir ánnað að hann rekist á báta, sem eru á leið hans. En hann sinnir því ekkert. Um þetta getur hann ekki talað við nokkurn mann. Þetta er einkamál hans í þokunni. — Nú er hann kominn langt á burt — hafi hann þá ekki róið í hring. — Bezt er að prófa dýpið. Hann hnýtir á nýjan öngul og rennir. Nei, hérna er að minnsta kosti tíu föðmum dýpra, svo að ekki er það sami staðurinn. Undir morguninn setur Jón gamli í stórdrætti í þriðja sinn. Og nú veit hann þegar, hvað það er. Geigurinn mikli renn- ur af honum eins og martröð. Hann er rólegur og kaldur, eins og hann á að sér, meðan hann dregur dráttinn. »Sá þykist víst eiga erindið við mig«, hugsar Jón gamli. — »Og illt getur það •ekki verið«. — Svo innbyrðir hann líkið og gerir krossmark yfir því. Leggur það síðan gætilega í afturskutinn. Nú fylgir hvorki neinn ótti né óhugur með þessu. Skárri var það nú líka barnaskapurinn! Jón gamli sezt niður á framþóftuna, styður olnbogunum á hné sér og hvílir hökuna í höndum sér og virðir fyrir sér segldúksströngulinn í afturskutnum. — Hann hugsar ekki. Hann er enginn heila- brotamaður, Jón gamli. En hann sér. —- Það er eins og þoku dragi frá innri aug- um hans: — Suður með lágum, sendnum ströndum stefna allmörg stafnhá skip í tveimur röðum. Hægur vestanvindurinn fyllir rá- seglin. Forustuskipið er stærst, og seglin röndótt. — Mennirnir eru háir vexti, bjarthærðir og bláeygir. Jón gamli finn- ur á sér, að þetta eru norrænir víkingar. Forfeður hans. —■ Flotinn kemur að stóm ármynni. Þeir sigla upp fljótið, all- langt, og koma þar að borg einni. Þetta er þeirra borg. Hér hafa þeir sezt að í framandi laridi. Jón gamli veit, að það eru fornsögurnar, sem lifnað hafa í huga hans, og birtast honum nú í lifandi myndum: — Göng’u-Hrólfur, Rúða, Nor- mandí! Jú, jú. Ekki ber á öði'u. Og nú sér haixn skýi't fyrir sér ljós- hærða piltinn bláeyga, sem liggur þarna í skutnum hjá honum. Hann hefur sama svip og yfirbragð sem víkinga-höfðing- inn. Þetta er enginn réttilegur Flandrari. Þeir eru allir svartix-, — dökkir á brún og brá. Einhver einkennileg skyldleikatilfinn- ing gagntekur Jón gamla. — »Þessi pilt- ur hlýtur að vera af okkar fólki kominn. — Það er ekki þynnkan í því, norræna blóðinu! Það heldur svip sínum og ein- kennum gegnum ættir og aldir«. »Jú, jú, pilturinn sá ama er af okkar bergi brotinn. Og þessvegna leitar hann til mín! — Já, einmitt. Grunaði eklci

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.