Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Page 14

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Page 14
Percy B. Westerman: Æfintýri úr íshafinu. Jakob Ó. Pélursson íslenzkaði. (Fi-amJi.). VII. Vélsleðinn reyndur. JÞað tók ekki langan tíma að koma vél- sleðanum út á ísinn. Hann var næsta lít- ill og líktist mest hinum venjulegu heims- skautssleðum. En í stað þess að vera dreginn af hundum, var hann knúinn á- fram af loftskrúfu, sem var í sambandi við fjögurra strokka benzínvél. — Ég get svo sem haft með mér riff- ilinn, sagði Aubrey Hawke og lagði skinnstranga í sleðann. Við fáum ef til vill tækifæri til að skjóta eitthvað. — Hvers vegna vefjið þér hann eins og smurling? spurði Guy. — Til þess að brenna ekki á mér fing- urna, svaraði Hawke. Ef menn snerta frosið járn, hefur það lík áhrif og væri það rauðglóandi. Legðu riffilinn undir sætiö,, Guy. Leslie, þú skalt setjast rétt fyrir framan mig. Þú getur tekið við stýrisstönginni, þegar ég hef reynt hana. Sleðinn var með þrem sætum og með togaraskrúfu. Yfir blöðurn hennar voru stálhlífar. Sleðinn rann á stuttum stálmeiðum með hvössmn eggjum. Við þá var fest stutt stýrisstöng úr askvið. — Þetta er nokkurskonar reynslu- akstur, áður en við förum að nota stóra sleðann, sagði Aubrey Hawke. Ég hef aldrei fyrr stýrt sleða, sem knúinn er með loftskrúfu, svo að ég hygg, að ég þarfnist æfingar. Leggizt nú báðir niður og dragið húfunrar vel niður á höfuðið. Drengirnir hlýddu. Á meðan gekk Hawke fram fyrir sleðann og bjóst til að setja vélina af stað. Það gerði hann með því að snúa skrúfunni. Guy braut heilann um það fullur eftirvæntingar, hvað gerast myndi, þegar vélin færi af stað. Skyldi Hawke fá tíma til að komast í sætið, áður en sleðinn þyti af stað með fjörutíu mílna hraða á klukkustund? Vélin var óþjál. Sakir hinna miklu kulda voru strokkarnir frosnir. En þeg- ar skrúfunni hafði verið snúið nægilega oft, kveikti benzínið að lokum. En ennþá gerði sleðinn enga tilraun til að renna af stað, þótt hann titraði allur við gang vélarinnar. Næstum því letilega gekk Hawke að sætinu, kom sér þar þægilega fyrir og hreyfði við nokkrum handföngum. Snúningshraði skrúfunnar jókst skyndilega. Sleðinn tók kipp og rann af stað og náði fljótt fjörutíu rnílna hraða á klukkustund. Þeir voru ekki nema þrjár mínútur að aka út á yztu ísbrún. Hawke hægði þá ferðina og beygði gætilega til vinstri. í sama bili lyftist vinstri meiðurinn um tvö fet, svo að við sjálft lá, að farþeg- arnir yltu út á ísinn. Þegar sleðinn komst aftur í samt lag, jók Hawke hraðann til hins ítrasta. Sleð- inn þaut áfram, eins og í hann hefði

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.