Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Síða 22

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Síða 22
68 NÝJAR KVÖLDVÖKUR svo fljótt sem hann gat, og knúði jafn- framt hreyflana til hins ítrasta. Sleðinn tók kipp og hleypti óðfluga undan. — Bölvaður nokkuð! Við höfum tæp- lega undan honum! hi'ópaði Ranworth, sem hafði gengið aftur í ásamt Guy og Rogers til að hafa auga með hinum sókn- harða hval. — Nei, það gerum við ekki, sagði Ro- gers rólega. Má ég skjóta á hann? Ranworth gaf samþykki. Hásetinn tók þá riffil úr farangrinum, skrúfaði aðra afturrúðuna úr og lagði riffilinn á lá- túnsbrúnina. — Framhjá til allrar bölvunar! hróp- aði hann. Það er sjálfum mér að kenna. Það er veltan á sleðanum, sem veldur því. Ég hefði átt að hugsa mig betur um. Rogers lyfti rifflinum aftur, en nú gætti hann þess vel, að hann kæmi ekki við brúnina. í þetta skipti fór kúlan í bakið á hvalnum. Æðisgenginn af sársauka þyrlaði hann upp sjónum með sporðinum og stakk sér á kaf. En stuttu síðar kom hann aftur upp og hóf óbilgjarn nýja ofsókn. Geturðu ekki látið vélina vinna hrað- ar? spurði Ranworth. — Hún gerir það sem hún getur, svar- aði Leslie. Hvalurinn var nú tæpa fimmtíu metra á eftir. Ranworth virtust kringumstæð- urnar ískyggilegar, einkum þar sem hin- ar litlu riffilkúlur virtust ekki hafa nein áhrif á hvalinn. — Verið þér rólegir, sagði Rogers ör- uggur. Ég skal kitla hann, svo að hann verði ánægður. Skotið reið af meðan hann mælti þessi orð. Svo heppilega tókst, að kúlan lenti í vinstra auga hvalsins. Hann gaus blóð- litaðri vatnssúlu í loft upp, stakk sér og kom ekki framar í ljós. — Nú fer að verða liðin klukkustund,. Rogers, sagði Ranworth og leit á úrið. Allir höfðu nú gengið fram í af'tui’, og þótt sleðinn hefði farið um fimmtíu enskar mílur meðfram ísnum, var ekkert merki sjáanlegt um færa leið í gegnum hann. Hásetinn ypti einungis breiðu öxlunum sínum. Enn voru fimm mjnútur eftir af tím- anum. Þarna er staður, sem mér sýnist ekki svo fráleitur, sagði Payne og benti á stað nokkurn i ísbrúninni, sem ekki sýndist sæbrattur, heldur með jöfnurn halla nið- ur. Þeir stýrðu sleðanum þar að. Er þeir nálguðust, urðu þeir þess vís- ari, að ísnum hallaði ekki eins jafnt og virzt hafði í fyrstu. Með aðgæzlu og" góðurn stjórntökum gæti þó ef til vili tekizt að koma sleðanum upp á ísinn. — Já, það ætti að geta heppnazt, hélt Ranworth. En við vitum ekki, hvernig ísinn er þarna uppi. Það er nefnilega gagnslaust, ef hann er rofinn af einlæg- um sprungum, sem við gétum ekki kom- izt yfir. Stöðvaðu vélina, Leslie. Við stýr- um sleðanum inn að ísnum og göngum í land. Það borgar sig. Sleðanum var stýrt gætilega inn að ísnum og tveim stjórum kastað á land. Væri sleðinn vel festur, var ólrætt að láta hann eiga sig, þar sem ekki var út- lit fyrir nein veðrabrigði. Rogers hoppaði upp á hálan ísinn með klakagref að vopni og byrjaði að höggva. þrep í hið harða og slétta yfirborð. Þegar hann var búinn að höggva eins konar stiga upp eftir hallanum,, var kaðli kastað til hans. Hann festi kaðalinn við klakagrefið, sem hann hafði höggvið fast í ísinn. Hinir ferðalangarnir handstyrktu sig á kaðlinum upp á ísinn. Þessir fimm æfintýramenn gengu nú í halarófu inn eftir ísnum. Ranworth gekk fyrir og tók stefnuna eftir áttavita. Til

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.