Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Blaðsíða 27

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Blaðsíða 27
ÆFINTÝRI ÚR ÍSHAFINU 73 setti Leslie vélina af staðr setti loftskrúf- urnar í samband og lét hjólin falla. — Allt tilbúið, sagði hann. — Af stað þá, en hægt! skipaði Ran- worth. Ranworth stýrði sleðanum að ísbrún- inni, þar sem hún var lægst, þangað til framhjólin náðu upp á brúnina. Frarn- hluti sleðans hófst upp úr sjónum; en í næstu andrá rann hann aftur af brún- inni og í sjóinn með allmiklu skvampi. Hvað eftir annað gerðu þeir sömu til- raun, en hún reyndist árangurslaus. — Reynið meiðana, sagði Rogers. Ranworth féllst á það. Hjólin voru dregin upp, svo að sleðinn hvíldi á stálmeiðunum, og loftskrúfurnar tóku aftur að snúast. I þetta sinn virtist heppilega ætla að takast. Sleðinn komst meira en hálfa leið fyrir tilverknað hinna kraftmiklu loft- skrúfa. Svo dró mjög úr ferðinni, þang- að til sleðinn staðnæmdist efst í brekk- unni, og loftskrúfurnar unnu nákvæm- lega jafnt og þyngdaraflið. — Láttu sleðan renna hægt niður aft- ur, sagði Ranworth. Við eyðum bara straumi til einkis. Sleðinn rann nú aftur ofan að vatns- borðinu. — Ég er hræddur um,. að við verðum að hætta við að reyna til uppkomu hér og freista heldur vestar, sagði Ranworth. — Höfum við ekki eitthvað af segldúk naeðferðis? spurði Leslie skyndilega. — Jú, nokkra stranga. Hví spyrðu um það? — Ef við gætum lagt segldúk á ísinn undir hjóliri, mundu keðjurnar fá betra viðnám. •— Að mér heilum og lifandi, — þetta niun rétt hjá þér, hrópaði Ranworth. Þú hugvitsmaður, Leslie. Við skulum reyna þetta. Svo bætti hann við með Jægri röddu: Ég get ekki skilið, hvað gengur að þeim Rogers og Payne. Þeir eru ef til vill dálítið þreyttir; en það er nærri því líkt og þeir búi yfir uppreisn. Payne heyrð orð Ranworths. — Uppreisn, — hér? endurtók hann. Ég þekki ekkert til slíks. En ég og félagi minn réðum okkur ekki til að vera með í heimskupörum á þessu óbjörgulega far- artæki. Fáið okkur almennilegan bát, þá skulum við líka vera almennilegir. En ef þið viljið eyðileggja góðan segldúk á þenna hátt, þá getið þið sannarlega hjálp- að ykkur sjálfir. Hvað segir þú, félagi? — Ég segi það sama,, sagði Roger dræmt. Ég er orðinn langleiður á þessu öllu. Ranworth gekk eitt spor áfram og staðnæmdist frammi fyrir Payne. — Heyrið, Payne, sagði hann alvar- lega. Þér björguðuð lífi okkar nýlega, og við erum ykkur þakklátir fyrir það. Nú reynið þér að eyðileggja hið góða, er þér hafið gjört, og hafið í hótunum um að hindra leiðangurinn í að ná tak- marki sínu. Ef til vill eruð þér ekki enri búnir að ná yður eftir hinar hræðilegu stundir á ísnum, svo að ef þér gerið skyldu yðar nú, mun ég g'leyma' fram- komu yðar. — Og ef ég hef nú ekki löngun til þess? spurði Payne. — Þá skal ég sjá um að þér megið til. Payne hló óskammfeilinn. — Munið, að við erum tveir gegn ein- um, sagði hann. Drengina tvo reiknum við ekki. Þeir koma ekki til greina, þeg- ar svo langt er komið að um kúgun er að ræða. Ranworth gekk hratt nokkur skref aftur á bak og tók upp skammbyssu. — Annað hvort hlýðið þér, áður en ég hef talið upp að tíu,. eða ég skýt yður, Payne, sagði hann rólega. Einn, tveir, þrír — 10

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.