Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Síða 34

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Síða 34
80 NÝJAR KVÖLDVÖKUR nefna nokkur atriði, sem koma því við, enda er það í alla staði svo merkilegt, að enginn getur gleymt því, sem séð hefur. Innganguxúnn er ofur einfaldur, svo sem á öðrum húsum, en forsalirnir eru tveir og í öðrum þeirra prýðilegt altari, helg- að húsguðunum. I stærra salnum fundust tvær stórar peningakistur, en því miður hefur verið grafið niður á þær þegar eft- ir gosið og þær tæmdar. Frá forsölunum liggja tröppur báðum megin upp í íbúð- arherbergin á loftinu. Súlnasalurinn fyr- ir innan er stór og ákaflega fagurlega frá honum gengið; eru þar blóm og runnar, borð, sæti og myndastyttur, og öllu þessu er fyrir komið sem líkast því sem verið hefur fyrir gosið. Mörg eru herbergi í húsinu og auðséð á öllu, að þar hefur búið listelskt og efnað fólk, sem mikið hefur haft um sig. Á veggjun- um er fjöldi mynda, og hafa línur og lit- ir haldið sér svo vel, að mann rekur í rogastanz. Sýna flestar myndirnar þekkta viðburöi úr goðafræði Rómverja. Þó verður hverjum gesti starsýnast á langar raðir veggmynda i forsölunum. Eru þær gerðar af mikilli list og sýna ástarengla (amorini), sem hafa allt hug3- anlegt fyrir stafni innanhúss og utan. —- I húsi þessu hafa búið bræður tveir, leys- ingjar, sem borið hafa ættarnafnið Vet- tius; er því húsið kallað Vettia-hús. Þeir bræður hafa veriö listhneigðir og vellauð- ugir, því að bæði bera peningakisturnar þess vottinn og svo hafa fundizt þar í öskunni feiknin öll af dýrum skartgrip- um, sem íbúarnir hafa týnt í flaustrinu, þegar þeir voru að flýja húsið. En sið- lætið í Vettía-húsinu hefur verið af skornum skammti; þarf ekki annað en að líta inn í baðklefa húsbændanna til þess að sannfærast um það, og til eru þar svo ósæmilegar myndir á veggjunum,. að þeim verður ekki með orðum lýst. Síðasti staðurinn, sem eg skoðaði í Pompeji, var þríhyrnda torgið (foro triangulare) í suðui’hluta borgarinnar, skammt fx’á Stabiæ-hliðinu. Það er þrí- hyrnt í lögun, svo sem nafnið bendir á, stendur hátt, og þar er að finna nokki’ar elztu byggingar borgarinnar, musteri og önnur stórhýsi, sem nú eru vitanlega ekki annað en í’ústir einar. í lág austan. við torgið er gamalt leikhús, sem kallað er Stóra leikhúsið. Er leiksviðið dýpst í láginni, en hækkandi röð áhoi'fendasæta. í hálfhring í hvilftinni fyrir ofan. Á bak við leiksviðið eru miklar i’ústir af skálurn þeim, er skilmingamennii'nir höfðust við í. Útsýnið frá þrihyrnda torginu er óvið- jafixanlega stórfenglegt og fagui't. Þegar staðið er á musterisrústunum fornu og horft hringinn í kring, er boi'gin Napoli í noi'ðvestri; í norður breiðist grátt í'ústaflæmið, ekki ósvipað því að þar væri úfinn og storknaður sjór; á bak við gnæfir Vesuvius, tignarlegur og alvarleg- ur, en gufumökkui'inn upp úr kolli hans nxinnir á eldiixix, sem undir býr. í austri er flöt sléttaix, en í hásuðri blasir við bæi'inn Castellamare, þar senx áður var' borgin Stabiæ, og í suðvestur þaðan sæ- brött sti'öndin allt suður að Sorx-ento. í vesti'i breiðist dinxmblár flóiixix og grillir í eyjamar Capxú og Ischia úti í hafbi'ún- inxxi. — Á meðaix verið er á ferðiixixi um borgina, gengið úr einu húsi í annað og hvervetna er íxóg nýstárlegt að sjá, kenn- ir eixgiixix þorsta né þreytu, en þegax- íxumið er staðar, segja jafnskjótt til sín áhrif heitrar lognmolluixnar. Þá vex’ður hver fegimx að fá sér vel að di’ekka, setj- ast aftur í bifreiðina og i'ifja upp fyrir sér í íxæði eitthvað af því, senx fyrir aug- un hefur borið í Pompeji hinni fonxu.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.