Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Page 49

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Page 49
JÁRN-MARÍA 95 leyfis að fá að kyssa hana, — þessvegna -varð henni svo mikið um, að hún fór að hágráta. Um kvöldið sat hún úti fyrir húsinu •sínu. Gegnum hálfopnar dyrnar sást í lágt rúmfleti, með rauðu áklæði yfir, eitt af þessum fletum, sem maður sér víða í verstu afkimunum í Marseille og Toulon. En María var alveg hugfangin, hún var full af einhverri ólýsanlegri gleði, og þó langaði hana helzt til að deyja, því að hún fann á sér, að annan eins dag myndi hún aldrei lifa aftur. Rétt í þessu heyrði hún skrölt í vagnhjólum. Hún þekkti þetta skrölt í háu og mjóu hjólunum á harðri götunni. En hver fær lýst undrun hennar, þegar vagninn kom nær og var fullur af blómakörfum. Og þessi blóma- vagn var dreginn af allri setuliðsdeild- inni, sem hrópaði nú glaðlega til hennar: »Járn-María, hér eru blóm, blóm, blóm! Þú átt öll þessi blóm!« Og Barnavaux, fótgönguliðinn með fallegu augun, sem glottu svo eijikenni- lega undan hjálminum, gekk nú til henn- ar og kastaði silfurpeningi í kjöltu henn- ar- — »Hérna hefur þú einn piastra, Járn- María!« María var eins og hún vaxnaði af svefni og starði á peninginn. »Já, já, einmitt það«, sagði hún svo. »Jæja, komdu inn fyrir Barnavaux«. En Barnavaux svai’aði: »Nei, ekki núna. í dag er hvíldardagur og hátíðis- fdagur fyrir alla. Samkvæmt hærri skip- un! Og héðan af heyrir þú herdeildinni :til«. Hún glápti á hann, án þess að botna í neinu, en hermennirnir, þessir 300 sem lifðu, gengu hægt fram hjá henni, heils- uðu að hermannasið og köstuðu skínandi silfurpeningi í kjöltu hennar. Svo fóru 'þeir. María var alein eftir. Alveg yfirbuguð horfði hún á fjársjóðinn. Hún var hálf hrædd við þessa fúlgu- Henni fannst ó- mögulegt að hún ætti þetta, hún hafði ekki unnið fyrir þessu fé, — það kom frá hreinni uppsprettu. Loksins reis hún á fætur og batt peningana innan í klút. Þessi sterka kona, sem ekki hafði látið neitt á sig fá, skalf eins og hrísla. Það var komið myrkur, þegar hún bað um áheyrn hjá yfirhershöfðingjanum. Hann tók strax á móti henni og horfði rannsakandi augum á þessa skjálfandi konu. »Ég get ekki tekið við þeim«, byrjaði hún. »Ég get það ekki. Ég get ekki notað þessa peninga eins og hina, sem ég vinn mér inn. En á ekki að fara að byggja hér sjúkrahús... eru þessir peningar ekki nógir fyrir ókeypis rúmi?« Svona stendur á því, að enn þann dag í dag stendur hvítt spjald á einu rúminu í sjúkrahúsinu og á það er letrað: Nr. 1. Gefið af Maríu F.— Og þessi saga er sönn. Og nú skal ég segja frá því, hvernig Járn-María elskaði, og hvernig hún loks dó. Ég skal ekki fullyrða að hún hafi dá- ið af ást, það er nú samt staðreynd, að það fólk er til, sem deyr af ást — ekki aðeins í sögunum, heldur líka í veruleik- anum, lífinu. En hin ofsalega ást, sem Jám-María bar til Rogers læknis, hefir vafalaust flýtt fyrir dauða hennar. En hún hefir ekki trúað neinum fyrir þess- ari ást sinni; það var hennar leyndarmál, sem hún tók með sér í gröfina. Sönn kona geymir alltaf skírlífi sitt á vissan hátt, hvað sem fyrir kemur. María gat ekki geymt hreinleika líkama síns, hon- um fórnaði hún fyrir hina hryggilegu at- vinnu sína. En hreinleik sálarinnar kunni hún að geyma, því sál hennar var full af hreinum og óeigingjörnum kærleika.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.