Nýjar kvöldvökur - 01.01.1936, Síða 45

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1936, Síða 45
BÓKMENNTIR 39 að deila við hana um drottins ráð, en duttlungagjöm var hún þessi náð, 'Sem liðsmannafleyin færði í kaf, en fékk svo landeyðum gylltan staf. Og ranglætið djúpt hans hjarta hjó. Hann halta fætinum niður sló. Svo greip hann stafinn og gekk á dyr. A gólfinu sýndist hann stærri en fyr. En örlagaglíman er ærið hörð. Með orkunni hnígur hver draumur að jörð. Vér kveðjum það glæsta, sem gat ekki rætzt en grípum það smæsta, sem hendi er næst. o. s. frv. Stef nefnist nýkomin ljóðabók eftir Frið- geir H. Berg, prentuð á Siglufirði. Höfund- urinn er víðförull og víðsýnn, hefir dvalið uokkurn hluta æfinnar í Vesturheimi, en hvorki glatað við það þjóðerniskennd eða fögru málbragði. Hann er að öllu leyti vel íarinn um móðurmál sitt og skáld gott, svo sem þetta Ijóðakver ber með sér, gerhugull °g orðhagur í bezta lagi. Bókin hefst með farmannsrímum: Með útþrá var eg alinn hún í mér jafnan brann. — Hafið hugann dró. Við úfið hraun og urðir eg yndi mitt ei fann. — Saltan þráði eg sjó. Víðar sléttur, vötn og græna skóga. Ur landi bjó eg skip mitt og lagði út á haf. — Rán við súðir söng. Stafaði sólin seglið svo sindraði af. — Dundi rá og röng. Að kvöldi voru vötnuð hæstu fjöllin. Mig báru vindar víða, raig velkti úti um hríð. — Oft í austri stóð. En mörg í minni varir í>ó mánanóttin fríð. — Geislum fágað flóð og suðurkrossins silfurbjörtu stjörnur. Eg kom til Kóraleyja vil sólbjart suðurhaf. —• Stóð á pálmaströnd. Þeim Ódáins-akri var rósa ilmur af. — Iðgræn undralönd birtust þar í bliki morgunsólar. Mér þótti sem eg hefði þar himin sjálfan gist. — Gleymd var fósturfold. Svo liðu langir dagar og leiðast tók mér vist. —• Sagna og mæðra mold hylla tók úr hugans undirdjúpi. Og hrjóstur heimalandsins í hug mér liðu þá — vorsins skrúði skrýdd. Þar sungu hvítir svanir við silung'svötnin blá. — Hló við heiðavídd. A fornar slóðir fýsti mig að leita« o.s.frv. Þetta er hið bezta ort og svo eru yfirleiít kvæðin í þessari litlu bók. Höf. láta vel nátt- úrulýsingar hvort sem hann lýsir íslenzkri sveitafegurð, eða hinum leyndardómsfulla þyt kanadiskra barrskóga. Þessi vísa er tek- in úr kvæðinu Málaeldur: Haustgulur hornbjúgur máni til hálfs sig í skýjum fól. í grenitré ýlfraði ugla en úlfur i myrkviði gól. Eg get ekki stillt mig um að benda á kvæði eins og Gömul saga, Hvöt, Sjá jörðin skelfur, Blessaður staður og Fögur var sveitin. Seinasta erindið í því kvæði hljóðar á þessa leið: Svo fagurt gat íslenzka alþýðu dreymt að allir, sem heyra, kætast.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.