Nýjar kvöldvökur - 01.01.1936, Page 47
Sigurður Einarsson:
Konungur konunganna.
Ég hef komizt yfir ritgerð í franska tírna-
ritinu Vei, um konung konunganna, Haile
Selassie, senr mér þykir að ýmsu eftirtekt-
arverð. Hún er skrifuð af frönskum nranni,
sem sennilega þekkir konunginn betur en
nokkur annar Evrópumaður, ef til vill bezt
allra manna, að undantekinni fjölskyldu
hans. Maður þessi heitir dr. Sassord og
hefur árum saman verið einkalæknir kon-
ungs. í ritgerð þessari lýsir hann svo nokk-
uð þessum einkennilega manni, sem um allt
virðist vera ólíkur öllum þegnum sinum, og
að öllu til yfirburða.
Saga þessa manns og valdataka hefur
áður verið nokkuð rakin í útvarpinu og skal
íarið fljótt yfir það. 28. nóvember 1909 dó
Menelik keisari eftir langa legu. Dauða
hans var bókstaflega haldið leyndum þang-
að til 11. desember 1913. Þá var látið upp-
skátt um dauða keisarans, og nú kom til
að skipa eftirmanninn. Hinn eðiilegi eftir-
uiaður var Lij Yasu, og varð hann nú keis-
arb og á meðal þeirra höfðingja, sem söfn-
uðust saman í þeirri góðu borg Addis A-
heba til að hylla hann, var grannur óásjá-
^egur maður, sem enginn hefði veitt at-
hygli ef hann hefði ekki borið blóð kon-
ungsfjölskyldunnar í æðum sér. Þetta var
Prins Tafari, þá með öllu óþekktur maður.
Éitt vissu rnenn, að faðir hans, Ras Ma-
konuen, hafði verið náfrændi og aldavinur
Meneliks. Lij Yasu og prins Tafari voru
gamlir kunningjar, en engir vinir. Þá var
Prins Tafari landstjóri í Harrar. Engum
koni til hugar, að hann yrði nokkru sinni
keisari, og allir gerðu ráð fyrir að inetorða-
gnni hans væri meira en fullnægt, með
landstjórastöðunni. En Lij Yasu gerðist
verkfæri Evrópiskra áhrifa og linur við
múhameðstrú, og móðgaði þannig hinn al-
máttuga klerkaflokk landsins. Klerkar
sögðu honum upp trú og hollustu og leystu
menn af eiðum við hann. Prins Tafari var
kjörinn ríkiserfingi og Zaoditu varð um
stund drottning. Margra klukkustunda bað
í ísköldu og margvígðu heilögu vatni, í
sambandi við allalvarlega Iungnabólgu,
gerði enda á hinn heldur viðburðalausa
stjórnarferil hennar. Ras Tafari varð keis-
ari, hann var krýndur hinn friðhelgi og
voldugi konungur konunganna yfir öllurn
Abyssiníulöndum og hjálendum. Tók hann
sér þá nafnið Haile Selassie I. Þar með
hefst menningarsaga Abysssiniu í evrópsk-
um skilningi á menningu, segir dr. Sassord.
Ég hef dögum oftar séð þenna mann og
talað við hann. Og hver viðræða jók aðdá-
un mína á hinum undursamlegu hæfileik-
um hans og virðingu mína fyrir dugnaði
hans. Hann er gjörólíkur öllum mönnum
þjóðar sinnar og ber af þeirn öllum.
Keisarahöllin í Addis Abeba er ömurleg-
ur staður. Hugsið ykkur stóran, myrkan sal,
þar sem er svo skuggsýnt að maður sér
ekkert, er maður kemur að utan, við fyrstu
sýn. Langar raðir af dökkum og gyltum
hægindastólum frammi fyrir flosklæddu
hásæti. Keisarinn situr þar. Hann situr
fullkomlega hreyfingarlaus í algerðri hvíld
og ró. Hinar undurfögru hendur hans hvila
á silkiskikkjunni grafkyrrar. Höfuðið er
mjög fallega lagað, ennið hvelft, nefið
langt og rís í mjúkri bogalínu, munnurinn
markaður djúpri íhugun, neðri vör ofurlítið
6