Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Síða 7

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Síða 7
N. Kv. 101 DAVIÐ STEFANSSON FRA FAGRASKÓGI Þetta er mjög þýðingarmikið meginatriði í skáldskap hvaða höfundar sem er, og því þýðingarmeira, því snjallari sem túlkun skáldsins er. Mannskemmandi lífsstefna í skáldskap er lýðnum því hættulegri sem hún er túlkuð af meiri list, því hættu- minni, sem framsetningin er lélegri. Ég hefi nú þegar gert grein fyrir skoðun minni á Davíð Stefánssyni sem lista- manni, og það er bezt að taka það strax fram, að boðskapur hans er fullkomlega jákvæður. Davíð Stefánsson byggir meira upp en hann rífur niður. Stari hann í myrkur, þá sér að minnsta kosti ljós bak við það. Handan við óréttlætið, eygir hann réttlæti. Engin barátta er vonlaus, engin álög svo mögnuð, að þeim verði •ekki aflétt. -----„Ef útlagar himins, ættir jarðar óska þess heitast, sem mestu varðar, mun framtíðin frelsa þá“. En það þarf þjóðlegar hetjur til þess að standa við stýrið og leysa vandann, það þarf drengi góða. Það er ekki til neins að ætla sér að draga Davíð Stefánsson í einhvern ákveð- inn pólitískan dilk. Hann er hafinn yfír alla stéttaskipting, alla stjórnmálaflokka og hversdagserjur augnabliksins. Hann er of stór, of frjáls, til þess að rúmast innan hinna þröngu landamæra einhverrar sér- trúarklíku eða flokksstefnuskrár. Hann ann bæði ofurmenninu og nafnlausum lýðnum, skilúr báða og er beggja bróðir. Hann dæmir og fyrirgefur, sakfellir og sýknar og á ofurauð samúðar. Sérstakrar samúðar nýtur hin einmana sál í skáld- skap hans, hinn hæddi og hinn fyrirlitni og sá, sem húsvilltur og bannfærður reik- ar um jörðina. Þetta kemur jafn greini- lega í ljós í öllum bókum skáldsins, jafnt þeim, sem innihalda bundið mál sem óbundið, og vil ég í því sambandi benda á einn kaflann í skáldsögu hans, Sólon Is- landus, kaflann um Júllu, sem ég tel ein- hvern fegursta skáldskap, er ég hefi lesið. Samúð Davíðs Stefánssonar með sorgar- börnum tilverunnar er jafn hyldjúp og fyrirlitning hans á hræsnurunum og þeim, sem smjaðri lúta. — Þá er ég kom- inn að öðrum aðalþættinum í skáldskap Davíðs Stefánssonar, ádeilunni. Yfirleitt gætir mjög ádeilu í seinni bókum hans og mest þeim síðustu. Skáldið heggur sverði sínu miskunnarlaust í allt spillt og rotið, segir sannleikann af fullri einurð, hver sem í hlut á. Hann hirtir kirkju og kenni- lýð, valdhafann í hásætinu og þrælslund- aðan skrílinn, sem flatmagar í rykinu fyr- ir fótum valdhafanna, óðfús í að láta villa sér vits og sjónar. „Vei, vei þér kóngur og kirkja og gráa guðlausa öld“. Davíð Stefánsson minnir mig í skáld- skap sínum bæði á kristinn spámann og heiðinn víking. Hann minnir mig á Jó- hannes skírara og Egil Skallagrímsson, enda mótaður af báðum, beggja læri- sveinn. Hann er mildur og miskunnar- laus í senni, suðrænn og ástríðuþrunginn um leið og hann er hánorrænn og svalur. „Ég er gleðinnar sólbrenndi sonur og sorganna fósturbarn“, segir hann á einum stað, og á öðrum: „Ég er björninn að norðan. — Þar á ég heima“. Það er ekki að undra, þegar slíkar and- stæður sameinast mikilli, meðfæddri list- gáfu, þótt fram komi mikið og frumlegt skáld. Davíð Stefánsson hefir líka mynd- að skáldaskóla í landinu. Flestir hinna yngri höfunda, þeir, er ljóð yrkja, hafa orðið fyrir meiri eða minni áhi'ifum frá honum, og það er í alla staði eðlilegt og sjálfsagt. Það getur enginn orðið gott skáld, nema hann læri mikið, og beztu lærifeðurnir verða þá auðvitað þeir, sem

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.