Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Page 14

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Page 14
108 KENNIMAÐUR N. Kv. — Það væri ljóta gamanið, ef hann færi nú að sálast hann Ólafur, sagði Páll. — Vonandi er það ekki svo alvarlegt, sagði prestur. — Hann kvað vera mjög þungt haldinn, upplýsti Páll alvarlegur. Ef hann fellur frá, verður heimilið fyrirvinnulaust, og fátæktin svo mikil, að það má heita óskilj- anlegt, að þau skuli ekki vera komin á sveitina fyrir löngu. Það er hörmulegt að að hugsa til þess. Nóg eru hreppsþyngslin samt. — Páll hafði komið við hjá oddvit- anum á leiðinni og fengið þennan vísdóm að láni þar. — Líf allra er í guðs hendi, sagði séra Bjarni Símonarson. Þremur dögum seinna, að kvöldi dags, kom í Breiðavað bóndi af næsta bæ við Ás. Var hann fyrir hönd ekkjunnar að tilkynna séra Bjarna lát mannsins henn- ar, Ólafs í Ási. — Hörmuleg tíðindi, sagði prestur. Nú stendur ekkjan ein uppi með öll börnin innan við fermingu. — Það var mikill mannskaði að Ólafí heitnum, sagði nágranni hans. Hann var dugnaðarmaður, svo að af bar, og hjálp- samur langt um efni fram. Þrátt fyrir það bjargast hann af hjálparlaust, og er það meira en margur hefði leikið eftir honum. — Það var undarlegt, að þetta skyldi taka hann svona geyst, sagði prestur. Var hann ekki hraustur maður fyrir? — Það var hann einmitt ekki, svaraði gesturinn. Það var þess vegna ekkert svo undarlegt, þó að hann þyldi ekki kuldann og vosbúðina, sem hann varð fyrir á með- an hann lá á greninu. Hann var líka svo illa búinn. — Hvaða vit var það að flana út í slíkt veður illa búinn? — Hann var nú eina grenjaskyttan, sem gagn var að, hann Ólafur heitinn. Og hann var ekki maður, sem lét standa upp á sig. — En það var hreint óforsvaranlegt að hætta þannig lífi sínu. Fyrst maðurinn var ekki vel hraustur, átti hann að hafa vit á að búa sig svo vel, að ekki kæmi að sök. Slík vanræksla er ófyrirgefanleg gagnvart vandamönnum, sem eftir lifa, — Það er alveg rétt hjá yður, prestur minn. Mig minnir nú, að hann ætti sæmi- lega olíutreyju. En því miður var hún víst einhvers staðar í láni. Þetta á hann greið- vikni sinni að þakka, því að ef hann hefði haft treyjuna, eru miklar líkur til þess að hann hefði lifað. — — Ég verð að fara á morgun og heim- sækja ekkjuna, hugsaði séra Bjarni með sér, eftir að gesturinn var farinn. Það er hlutverk mitt að veita þeim, sem þjáðir eru og sorgmæddir, hugsvölun og rauna- bót, dreifa myrkri sorgarinnar, sem blind- ar augu þeirra, svo að þeim megi auðnast að sjá og skilja, að allt það, sem drottinn gerir, er harla gott og mönnunum fyrir beztu. Ráðstafanir guðs eiga að vera hátt hafnar yfir alla gagnrýni, en það gengur mörgum illa að skilja, og það skilnings- leysi orsakar alla sorg og örvæntingu. Þeir, sem varpa á guð öllu sínu trúnaðar- trausti og áhyggjum, þeir hafa deyft hinn sára brodd sorgarinnar. En til þess að ná þeirri fullkomnun, þurfa menn stuðning og leiðbeiningu, og það er mitt hlutverk að veita hana. Morguninn eftir var þoka, svo að ekki' sást út fyrir tún. Séra Bjarni kom að máli við Gunnar bónda og bað hann að lána sér hest, svo að hann gæti farið og talað við ekkjuna. — Hann hafði samið við Gunnar um hestlán, er hann þyrfti á því að halda, því að hann leit svo á, að það væri of dýrt að eiga hest. — Ég hefi því miður ekki nema brúnu merina heima, sagði Gunnar. En hún er sjálfsögð, ef þér getið gert yður hana að góðu. Ég hugsa, að það sé þýðingarlaust

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.