Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Page 17

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Page 17
.N. Kv. KENNIMAÐUR 111 léttbærara að bera hinar þungu byrðar, sem okkar skammsýna skilningi finnst hann leggja á okkur. Ekkjan sneri sér sem snöggvast frá glugganum og leit á sálusorgarann á stólnum. í munnvikjum hennar vottaði fyrir beisku brosi. — Mér ber víst að skilja það svo, að guð hafi af kærleika til mín og barnanna minna tekið manninn minn og föður þeirra frá okkur og skilið okkur með því forsjárlaus eftir í heiminum. — Enginn er forsjárlaus og yfirgefinn, sem elskar guð og treystir honum. En ég hefi tekið það fram, að stundum kann það að virðast svo, sem ráðstafanir hans séu ómaklegar. Þrátt fyrir það er í öllu, sem hann leggur á okkur, hulinn tilgangur, sem miðar okkur til góðs þrátt fyrir allt. Ekkjan sneri sér nú alveg frá gluggan- um. Það höfðu komið rauðir flekkir í vanga hennar, og þegar hún tók til máls, var rödd hennar dálítið óstyrk og sund- urslitin. — Þér fyrirgefið, prestur minn, þó að ég geti ekki verið á sömu skoðun og þér. Ég get ekki komið auga á kærleika guðs í því að svipta mig því, sem mér var meira virði en öll jarðnesk gæði. Og hvers eiga vesalings börnin okkar að gjalda, sem nú verða að fara á mis við þá vernd og forsjá, sem faðirinn einn getur veitt. Ég er að vísu ekki annað en skammsýn og ómenntuð kona og get þess vegna ekki annað en spurt: Er nokkur guð til og er þetta hans vilji. Og ef svo er, hvers á ég og börnin mín að gjalda? Rödd konunnar brast snögglega eins og strengur, sem hrekkur við ofþenslu. Hún sneri sér aftur að glugganum og fór að horfa út. Séra Bjarni stundi með sjálfum sér. Það var alveg dæmalaust, hvað mennirnir gátu verið þvermóðskufullir og skilnings- lausir í garð guðs. Þarna dugðu engar fræðilegar röksemdir. Þarna varð að tala hinu milda, huggandi máli tilfinninganna, til þess að ná árangri. — Ég get vel skilið, að sársaukinn yfir missi mannsins yðar blindi yður um stundarsakir, sagði hann svo. Það vill mörgum verða á. Því miður erum við mannanna börn svo skammsýn, að við sjáum aldrei fyrr en á eftir, hver er hinn sanni tilgangur guðs með því, sem hann leggur á okkur á lífsleiðinni. Ég bið til guðs, að þér eigið eftir að öðlast þann skilning. Þar til það ljós rennur upp fyrir yður, verðið þér að leita huggunar í því, að þetta sé óumflýjanlegt, þó að sárt sé. Látið ekki beiskju sorgarinnar blinda yð- ur. Biðjið guð hjálpar og verndar í mót- læti því, sem þér eigið við að stríða. Það er að freista drottins að efast um kær- leika hans og elsku til mannanna. — Hann mundi ekki gefa mér manninn minn aftur, þó að ég bæði hann þess grát- andi, unz ég hefði grátið augun úr höfð- inu, svaraði ekkjan. Um annað hefi ég ekki að biðja. Mundi hann forða börnun- um mínum frá hrakningi manna á milli? Mundi hann forða þeim frá því að þiggja náðarbrauð, þó að ég bæði hann þess? Nei, guð er of fjarlægur okkur fátækling- unum til þess að geta heyrt bænir okkar. Dæmin eru því miður alltof mörg, sem sanna það. Ógnar vandræði eru að tala um fyrir svona fólki, — fólki, sem þverskallast og hlítir ekki neinum ráðum. Séra Bjarni' vissi varla, hvað hann átti að taka til bragðs. Svona forherðingu þurfti sannar- lega að taka föstum tökum, en ástæðurn- ar voru þannig, að ekki var hægt um vik. — Guð er aldrei fjarlægur þeim, sem leitar til hans í bæn, sagði hann með al- vöruþunga. Konan svaraði ekki. Hún stóð ennþá við gluggann og horfði út. Eftir stundar- þögn sagði hún:

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.