Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Page 21

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Page 21
N. Kv. KENNIMAÐUR 115 getur hvert barn skilið. Á ég að lesa þér það, sem ég er búinn með? Hún gekk út að glugganum. — Ekki núna, góði. Þegar þú ert alveg búinn — kannske. Vonbrigðasvipur kom á andlit hans. — Jæja þá. Þú ert annars óskiljanlega áhugalítil fyrir ræðunum mínum, Vigdís. Hún sneri sér við. — Er ég það? En ég fæ nú að heyra hana á sunnudaginn. Svo má ég ekki vera að því núria. — Ég hélt, að þú ættir ekki svo annríkt. — Ja, jú, — ég þarf — ætla að gera svolítið. Það var þögn litla stund. — Sjáðu, sagði hún svo allt í einu. — Hvað? — Skýflókana þarna. Ég held, að hann ætli að rigna. — Það er svo sem viðbúið, tíðarfarið er svo óstöðugt núna. — Það væri hörmulegt, ef það færi að rigna núna, áður en menn hafa náð upp heyinu, sem þurrt er orðið. Þögn. — Heyrðu góði. — Já. — Ég ætla að skreppa út og hjálpa hon- um Gunnari. Hann á svo mikið flatt ennþá. — Þú? — í heyvinnu? — Já, er það svo mikið? Þó að ég sé því óvön, getur samt munað ögn um mig. — Viltu ekki heldur sitja hér hjá mér? — Þá tef ég svo fyrir þér, að þú lýkur aldrei við ræðuna. — Og svo er það hrein- asta synd að sitja inni þessa fáu sólskins- daga, sem við höfum ennþá fengið í sumar. — Jæja þá, sagði hann þurrlega. Gerðu eins og þér líkar bezt. Svo sneri hann sér aftur að ræðunni, án þess þó að skrifa nokkuð, sem vit var í. Honum hafði líkað þetta uppátæki konu sinnar dálítið verr en hann vildi þó kann- ast við fyrir sjálfum sér. Hann taldi víst, að hún mundi fara, en nokkur stund leið og hún hélt áfram að standa við glugg- ann og horfa út. Þögnin hlóðst upp á milli þeirra eins og múrveggur. — Ertu reiður við mig, góði? spurði hún svo lágt. — Reiður, nei, en mér finnst þetta bara óþarft og heimskulegt af þér, að vilja endilega slíta þér út fyrir aðra, svaraði hann dálítið styttingslega. Þú átt mikið ólært ennþá. Raunar hafði hann ekki ætlað að segja þetta síðasta, en áður en hann vissi af, hafði það skotizt upp úr honum. Til þess að bæta fyrir það, sagði hann dálítið mildari í máli: — Þú skalt bara fara út. Ég vil gjarnan, .að þú sért úti í sólskininu. Áður en hann hafði endað setninguna, var hún horfin út úr stofunni, án þess að segja nokkuð. Hurðin féll óvenju hart að stöfum á eftir henni, Hafði henni mislík- að? O, jæja, jæja, ekki gat hann gert að því. Örstuttri stundu síðar stóð hann við gluggann og horfði á eftir henni, þar sem hún hljóp við fót út á túnið með hrífuna í hendinni. Líkaminn var grannur og hreyfingarnar alltaf dálítið ótamdar, jafn- vel krakkalegar. Þó hafði hún lagazt mikið í seinni tíð, — Það er að segja, hún hafði breytzt, en hann var ekki ennþá búinn að gera sér það fyllilega ljóst, hvort það var til batnaðar. Já, hún hafði breytzt, hún Vigdís. Hún var ekki eins kát eins og hún hafði verið. Hann heyrði hana ekki syngja framar við störfin og hann kunni því hálfilla. Fram- koma hennar var líka öðruvísi; hún var fálátari og 'Stilltari. Það var að vísu gott og blessað, að hún reyndi að temja sér meiri fágun og virðuleik. Prestsfrú sæmdi ekki annað. En jafnframt varð hann að 15*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.