Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Blaðsíða 32

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Blaðsíða 32
126 SAGA MÖÐRUDALS Á EFRA-FJALLI N. Kv„ reimleika Möngu, sem hann kallar Rönku, sem fyrr er sagt. Þetta fær þó ekki stað- izt, nema hann hafi búið þar síðar. Verð- ur enn að því vikið. Sá maður, sem varð til þess að hefja að nýju byggð í Möðrudal, var Jón Jónsson, er síðast bjó í Ási í Kelduhverfi og hefir verið kallaður Jón ríki. Um ætt háns fer tvennum sögnum. Telja sumir ættfræð- ingar hann Seyðfirðing að ætt og upp- runa, son Jóns Ketilssonar á Brimnesi, en aðrir telja hann vopnfirzkan, son Jóns Árnasonar á Vakursstöðum, og tel ég það líklegra. Honum er svo lýst, að hann hafi verið atgjörvismaður, stór og sterkur, skýr og stilltur og af sumum haldinn fara með forneskju (J. Sigfúss.), en aðrir hafa talið hann harðgeðja svola. Mun það þá hafa verið hann, sem réði af reimleika Möngu, hafi nokkurs við þurft. Hvenær Jón hefir hafið byggð í Möðru- dal, er ekki fullkunnugt, en nálægt 1735 hefir það verið. Hann er talinn fæddur 1705 og að hafa kvænzt í fyrsta sinn um eða litlu eftir 1730. Hefir hann sennilega þá eða litlu síðar reist bú í Möðrudal og búið þar um nálægt 20 ára skeið. Fyrsta kona hans var Þuríður Gutt- ormsdóttir frá Hjarðarhaga. Hún dó í Möðrudal 1740. Önnur kona hans (um 1744) var Ása Guðmundsdóttir frá Vog- um við Mývatn. Hún var líka af ætt séra Gunnlaugs, jafnlangt fram komin. Sagnir eru sagðar um bónorðsför hans til Ásu. Jón Sigfússon ættfræðingur segir frá bón- orðsförinni á þessa leið: Þegar Jón kom í bónorðsförina til Ásu„ vildi hann gefa henni treyju og hring af fyrri konu sinni, en hún vildi ekki þiggja og ekki þýðast bónorð hans. Hann tók því með stillingu og skildi gripina eftir; fór svo leiðar sinn- ar heimleiðis. Þegar hann var farinn, er svo sagt, að Ása skoðaði treyjuna, hafi farið í hana og þótt sér vel hæfa. Fer nú á eftir honum sem skjótast, en náði hon- um ekki fyrr en fyrir austan Námafjall, kallar til hans álengdar og biður hann að bíða; hann gjörir svo. Þegar Jón sá, að það var Ása, sem á eftir kom, er mælt, að honum yrði að orði: „Ekki er Guð enn vikinn frá Jóni“. — Gekk nú saman með þeim, giftust síðan og bjuggu í Möðrudal 12—14 ár. Á meðal barna þeirra var Þor- steinn ríki í Reykjahlíð, sem Reykjahlíð- arætt er talin frá. Frá bónorðsför Jóns til Ásu og fleiri at- burðum úr sambúð þeirra er sagt nokkuð öðruvísi í Þjóðsögum Ólafs Davíðssonar (I., bls. 53). Af búskap Jóns í Möðrudal er svo sagt, að hann hafi endurreist bæinn af mikilli atorku, en hann var þá mjög af sér geng- inn, sem líklegt var; hafi honum búnazt þar svo vel, að svo var sem tvö höfuð væru á hverju kvikindi, einkum sauðfénu. En þrátt fyrir uppgang hans yið búskap- inn og landkosti Möðrudals, stóðst hann ekki harðindin, sem gengu um Norð-Aust- urland á 6. áratugi 18. aldarinnar (1751— 1757), enda lögðust þá fleiri jarðir í eyði á þessum slóðum, og varð fullkomið hall- ærisástand. Undir lok harðindanna, árið 1756, fluttist hann að Grímsstöðum við Mývatn, eignarjörð Ásu konu hans. Ekki þótti blessast búskapur hans þar; var því um kennt, að hann rak burtu það fólk, sem þar bjó áður, með harðri hendi. Bjó hann þar aðeins eitt ár. Þá keypti hann Stóru-Reyki á Tjörnesi, fluttist þangað og bjó þar um 20 ár. Er mælt, að þeir væru brigðaðir af honum. Þá keypti hann Ás í Kelduhverfi með hjáleigum og eyðikot- um; þangað fluttist hann 1775 og þar andaðist Ása (um 1783), en hann kvænt- ist enn í þriðja sinn (um 1793) Þorgerði Þorláksdóttur frá Ólafsgerði, þá nær ní- ræður, og andaðist nokkrum árum síðar 1799. Allsstaðar græddist honum fé og var

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.