Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Page 39

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Page 39
-1Í. Kv. BÓKMENNTIR 133 ast. Það er áreiðanlegt að þeir verða margir, sem bíða framhaldsins með ó- þreyju, og höfundurinn eykur drjúgum á lesendahóp sinn með þessari sögu. St. St. Dr. Jón Helgason, biskup: Tóm- as Sæmundsson. Æfiferill hans og æfistarf. — ísafoldarprent- smiðja gaf út. Dr. Jón Helgason biskup hefir unnið ís- lenzkri sagnfræði ómetanlegt gagn með hinum mörgu sagnfræðiritum, sem hann hefir skrifað. Munu honum fáir fróðari í ýmsum greinum íslenzkrar sagnfræði. Á skömmum tíma hafa komið út eftir hann fjórar ævisögur merkra íslendinga. Allar eru þær brunnur fróðleiks um persónur þær, er þær skýra frá, svo og um samtíð þeirra og því öllum söguunnendum bezti fengur. Síðasta sagnfræðirit biskupsins er ævi- saga Tómasar Sæmundssonar. Hefst bók- in með ýtarlegum kafla um hina merku Högnaætt, sem Tómas var kominn af. Þá er ævisaga Tómasar rakin frá æsku hans. Sagt frá skólanámi hans heima og erlend- is, hinni merku suðurferð hans, veru hans heima á íslandi og prestsskap, baráttu hans fyrir íslenzkum framfaramálum og að síðustu seinustu æviárum hans og dauða. Koma margir menn við sögu og margir atburðir, sem höfundurinn lýsir með kunnugleik margfróðs sagnfræðings. Bókin öll er skrifuð með hlýleika og lotn- ingu fyrir Tómasi, þessum glæsilega ís- lending úr endurreisnarsögu þjóðarinnar, sem skipa má næst Jóni Sigurðssyni. I minningu þjóðarinnar á hann að lifa sem hinn fjölhæfi, ótrauði baráttumaður fyrir rétti hennar og framförum, fullur ofur- móðs og fórnarvilja. Með ógnir dauðans á hælum neytir hann kraftanna til hins ýtr- asta, rís upp í sæng sinni, að bana kom- inn, til þess að skrifa um íslenzk velferð- armál. Um Tómas látinn sagði Jón Sig- urðsson: „Hann var íslands í innilegasta og algerðasta skilningi“. Allir ungir íslendingar ættu að lesa bók biskupsins um Tómas Sæmundsson. Væri þess þá von, að minning hans lifði eins og hún á að lifa og hvetti til drengskapar og dáða. Stíll biskupsins er ekki íslenzkulegur og mörg orðatiltæki eru þar óíslenzkuleg. Dregur það nokkuð úr gildi bóka hans, sem annars hafa hið mesta menningar- gildi. Þ. B. Ástvaldur Eydal Kristinsson: Síldveiðar og síldariðnaður. Rvík 1941. í formála fyrir bókinni segir höf. meðal annars: „í riti þessu hefi ég leitazt við að lýsa síldveiðunum íslenzku og iðnaðinum í sambandi við þær. Jafnframt er minnzt á framleiðslu annarra þjóða til saman- burðar. Frásögnina hefi ég leitazt við að gera stuttorða og gagnorða“. Þetta hefir höfundinum vel tekizt. Bókin er í senn bæði fróðleg og skemmtileg, en þó fáorð og gagnorð. Er sjáanlegt að höf. hefir við- að að sér efni víða að, og hefir notað fjölda heimildarrita, bæði útlend og inn- lend. Bókin er í sex köflum. í fyrsta kafl- anum fræðir höfundur um síldina sjálfa meðan hún er lifandi í heimkynnum sín- um, hafinu. Annar kaflinn er um síldveið- arnar. Er þar lýst veiðiskipum, veiðarfær- um o. fl. Þriðji kaflinn er um saltsíldina. Er þar lýst verkunaraðferðum o. fl.. Þar er og mjög fróðleg skýrsla um helztu framleiðslulönd og markaðslönd saltsíld- arinnar. Fjórði kaflinn er um bræðslusíld- ina. Lýsir höfundurinn vinnslunni frá því síldinni er skipað upp úr skipunum og þar til búið er að vinna úr henni mjöl og lýsi. Hann rekur og sögu síldarverksmiðjanna í aðalatriðum. Fimmti kaflinn er um síld- arfólk og sá síðasti um framtíðarhorfur. Það er ekki langt síðan að margir töldu

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.