Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Page 41

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Page 41
2í. Kv. BÓKMENNTIR 135 bók þessari sýnist mér að eigi þar ekki heima. Er hún um Bjarna Herjúlfsson, skráð eftir Ólafs sögu Tryggvasonar og Eiríks sögu rauða. Allmargar góðar mynd- ir af mönnum og húsum prýða bók þessa, en stór gadi er það á henni, að hún er gefin út á lélegan blaðapappír. Þ. M. J. Sigurður Nordal: Trúarlíj séra Jóns Magnússonar. Rvík 1941. Er þetta annar fyrirlestur, sem Háskóli Tslands gefur út til minningar um Harald prófessor Níelsson. Allir, sem kynnt hafa sér sögu íslands að nokkru ráði, munu hafa lesið Píslar- sögu Jóns Magnússonar, sem mun vera merkasta heimildarrit, sem til er frá Galdrabrennuöldinni, um ástand manns, sem þykist verða fyrir galdraofsóknum. Séra Jón kom því til vegar að feðgar tveir, Jónar að nafni, voru brenndir á báli. En þó lét hann sér ekki nægjaþetta, heldur reyndi að fá yfirvöldin til þess að dóttir eldra Jóns en systir yngra Jóns yrði látin fara sömu leiðina, en það tókst honum þó ekki. Prófessor Sigurður Nordal lýsir af djúpum skilningi sálarástandi hins hálf- sturlaða klerks, en sýnir fram á, að trú hans hafi þó bjargað honum frá því, að verða algerlega geggjaður. Þ. M. J. C. Krause: Dætur frumskógarins. Saga frá Mexíko. Guðmundur Frímann þýddi. I. LEITIN AÐ GIMSTEINADALNUM. Stormurinn þaut kveinandi um óravíð- ar slétturnar, svo hávaxinn gróðurinn reis og hneig eins og öldur úthafsins. Þung og dimm ský bárust um næturhimininn og heltu regninu í stríðum straumum yfir jörðina. Hver þruman rak aðra og gný þeirra óx og margfaldaðist við bergmál fjarlægra gljúfra. En öðru hvoru sló bjarma eldinganna á kolsvarta hamra- veggina. Tveir ríðandi menn þeystu álútir um óbyggðina, eins og þeir skelfdust óhugn- að næturinnar og umhverfisins. Gæðing- ar þeirra virtust að niðurfalli komnir af þreytu, en hvorugur mannanna sýndi þeim hina minnstu hlífð, en keyrðu þá sporum svo blóð draup úr síðum þeirra og vesalings skepnurnar prjónuðu, hneggjuðu æðislega og þeystu síðan áfram sem fætur toguðu. Báðir voru mennirnir dulbúnir og vopn- aðir að hætti Mexíkómanna. Þeir þögðu lengst af, en hertu reiðina, sem aldrei virtist taka enda. „Ert þú viss um að rata?“ spurði ann- arr þeirra að lokum. ..Já, hershöfðingi", svaraði hinn. „Heldurðu að hægt sé að treysta þeim Zurdo og Santuscho?“ „Eins og sjálfum mér, náðugi herra“. „Það var annars gott, að þið genguð

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.