Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Page 45

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Page 45
N. Kv. DÆTUR FRUMSKOGARINS 139 „Og þó það!“ mælti hershöfðinginn fyr- irlitlega, „hræðist þú nú einnig dauðlega menn?“ „Ég er ekki hræddur“, flýtti þjónninn sér að svara, „en liðsmunurinn er mikill. þegar tillit er tekið til þess, að þeir geta komið okkur að óvörum á hverri stundu“. „Reyndu að harka af þér! Ef þrælmenn- in vilja okkur eitthvað, þá er að taka því; við getum ekki umflúið það“. „Þér hafið rétt fyrir yður, herra, sagði Gomez, sem reyndi að sætta sig við örlög sín, „áfram þá!“ Með fingurinn á byssugikknum hélt hann áfram. Banderas fylgdi honum eftir, einnig með byssu sína spennta. Gomez einblíndi niður fyrir fætur sér, leitaði eftir blásnum kjúkum úr manns- beinagrind, sem hér og þar gægðust upp úr sandinum, og áttu að sýna leiðina. „Sérðu sporin?“ spurði Gomez hljóð- lega. „Já“, svaraði Banderas, „ en þau eru svo mörg, að illgert er að átta sig á þeim“ „Þetta eru spor eftir Indiíána11, hvíslaði Gomez efablandinn, „og meðal þeirra eru spor tveggja hvítra manna. Mér íinnst það grunsamlegt, þar sem við áttum ekki von á, að hér hefði komið aðrir hvítir menn en Zurdo“. „Spor tveggja hvítra manna, segir þú?“ „Já, sjáið þér þessi hérna, þau eru eftir Zurdo, það er ég viss um. En hér hefir annarr hvítur maður gengið, því að þessi grönnu spor eru ekki eftir Indíána“. Banderas kraup á kné í sandinn og at- hugaði gaumgæfilega sporin og sannfærð- ist um, að þjónninn hafði rétt fyrir sér. „Þér hafið á réttu að standa“, mælti hann og reis á fætur, „og ég þykist sjá, að hér séu brögð í tafli. En hér eftir get- um við ekki snúið við. Ef ráðist verður á okkur, þá seljum við líf okkar dýrt“. Gomez svaraði ekki, en hélt áfram að rýna í sandinn. „Er langt eftir ennþá?1' spurði Ban- deras. „Nei, eftir nokkra stund komum við út undir bert loft aftur. Einhversstaðar hér í berginu á að vera smuga, sem við þurf- um að fara í gegnum. Þegar út er komið, tekur við torfæra nokkur, áður en kom- izt verður í Gimsteinadalinn11. „Ég fer nú að missa þolinmæðina“, mælti hershöfðinginn, „þetta eilífa fálm í myrkrinu er hræðilega þreytandi“, „Verið þolinmóðir, herra. Innan skamms komum við að útgöngusmugunni“, mælti Gomez. „En — skyldi mér hafa skjöplast? Ég finn hana hvergi“. Hann kraup niður og þreifaði fyrir sér áfergjulega. „Þetta er óskiljanlegt!“ sagði hann* „hér liggur þó síðasta kjúkan, sem Zurdo. setti til að sýna leiðina og þó finnst hvergi svo mikið sem sprunga í bergið“. Þeir rannsökuðu nú hellisvegginn báð- ir. Allt í einu ráku þeir upp undrunaróp. „Það hefir verið sett bjarghella upp í munnann“, sagði Banderas, „sjáðu þessar rifur, sem afmarka stærð hennar“. „Hver getur hafa hreyft slíkt heljar- bjarg? Zurdo og allir Apacha-indíánarnir mundu ekki hafa þokað því úr stað, hvað þá heldur komið því jafn kyrfilega fyrir“. „Nei, það er hverju orði sannara“. Þeir lýstu með kyndlunum um vegginn, en myrkrið var svo svart, þegar frá dró, að illgert var að greina stærð hellunnar. „Við skulum ekki fara lengra“, sagði Gomez óttasleginn, „hellirinn er svo stór og vandratað um hann, að okkur getur reynst ógerlegt að rata til baka, ef við töpúm af þeim leiðarmerkjum, sem hafa vísað okkur veginn hingað“. „Eigum við þá að fara erindisleysu alla þessa leið?“ sagði Banderas þungbúinn. „Þekkir þú enga aðra leið en þessa inn í dalinn?“ „Nei“, svaraði Gomez vonleysislega. 18*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.