Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Page 48

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Page 48
142 DÆTUR FRUMSKÓGARINS N. Kv. hinnar undurfögru Maríu, dóttur Bander- as ráðherra, sem einnig var æðsti ráðgjafi í tollmálum. María var víðfræg vegna fegurðar sinnar og dyggða. Hann kvong- aðist henni og hún fluttist með honum sem hrúður hans til hinnar fjarlægu og einmanalegu haciendu. Eftir fárra ára hamingjusamt hjóna- band fæddi María honum son og ári síðar dóttur. En þegar dóttirin var sex ára gömul byrjaði heilsu móðurinnar að hnigna mjög skyndilega og eftir margra mánaða þungbæra legu andaðist hún. Eftir þennan sorgaratburð tók sárt þunglyndi og lífsleiði að sækja á Don Rodriguez. Hann forðaðist eftir mætti allt samneyti við annað fólk, og börn sín, sem hann elskaði öllu heitar, sá hann ekki nema við máltíðir og þegar ekki varð hjá öðru komizt. Eini maðurinn, sem Don Rodriguez um- gekkst var Banderas hershöfðingi, áður fylkisstjóri í Sonora. Hershöfðinginn heimsótti hann að jafnaði tvisvar á ári og stundaði þá veiðar á hinum víðáttumiklu skógarlendum Don Rodriguez. Það var ekki vegna nafnbótar og stöðu, að Don Rodriguez gerði hershöfðingjann að vini sínum og trúnaðarmanni. Hann naut skyldleika síns við hina dánu og sárt syrgðu eiginkonu plantekrueigandans. Þar að auki var margt í fari hershöfðingjans, sem Don Rodriguez geðjaðist vel að, og jók hjá honum traust og virðingu. Hershöfðinginn var á fertugsaldri. Hann var meðalmaður á hæð, þéttvaxinn og kraftalegur. Andlitsdrættirnir voru hreinir og unglegir. Að jafnaði var svip- ur hans góðmannlegur og einlægur og naut hann því almennra vinsælda í Son- ora. En við nána athugun mátti á vissum augnablikum sjá kynlegum leiftrum bregða fyrir í augum hans, sem gáfu til kynna að undir hinu siðfágaða yfirbragði hans blunduðu þungar ástríður, sem hald- ið væri niðri með valdi. Svo takmarkalaust var traust Don Rodriguez á hershöfðingjanum, að í erfða- skrá sinni hafði hann falið honum alla umsjá eigna sinna og gert hann að fjár- ráðamanni barnanna, þar til þau yrðu myndug. Þennan síðasta vilja sinn hafði hann gert honum kunnan, einhverju sinni er ótti um skammlífi hafði valdið honum sárum kvíða. Don Jaime, sonur plantekrueigandans, tvítugur að aldri, var sá eini, sem hafði óskiljanlega andúð á hershöfðingjanum frá fyrstu tíð, og hann reyndi ekki á nokkurn hátt að dylja það fyrir honum, en Banderas umgekkst hann með smjað- urslegri vinsemd, þrátt fyrir það, að hann. var í hjarta sínu móðgaður yfir þeirri lít- ilsvirðingu, sem honum var sýnd. Don Jaime hlaut oft ámæli föður síns fyrir framkomu sína, en hann hélt uppteknum hætti, þótt fyrirmæli föður hans væru honum óskráð lög í öllum öðrum greinum, Systir hans, hin fagra átján ára Donna Dolores, ávítti hann oft af sömu ástæðum, þó að hún í hjarta sínu hefði engar mætur á hershöfðingjanum. En vilja föður síns virti hún öllu fremur. Þannig stóðu sakir í haciendu Don Rodriguez sólarhring áður en þeir hræði- legu atburðir gerðust, er sagt var frá í fyrsta kapítula sögu þessarar. Þetta kvöld var fjölskylda Don Rodri- guez öll samankomin í borðstofu haciend- unnar, sem lá í þeirri álmu byggingarinn- ar, sem vissi út að fljótsbakkanum. Borð- stofan var rúmgóð, veggirnir hvítir og prýddir olíumáluðum laufaskurði og rósa- flúri. Langt og mjótt matborð var á miðju gólfi, innan við það voru pelli klæddir bekkir í gömlum stíl, en til beggja handa voru einfaldir en smekklegir tréstólar, sem ætlaðir voru þjónustufólkinu. Sex ljósakrónur gáfu stofunni næga birtu.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.