Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Page 28

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Page 28
22 VITASTÍGURINN N. Kv> „Já, en það er ekki lögmál náttúrunnar," sagði hún. „Samþykki foreldranna er auðvitað nauð- synlegt skilyrði.“ „Nú, — jæja, það er nú annars alveg sama, e£ þetta er þá ekki eintómt snuð, og ef Roosevelt fær alla peningana eftir ívarsen." „Ég er nú ekki svo hárviss um, að það verði drengnum okkar til neinnar blessun- ar,“ sagði Adam hæglátlega. „En hamingjan góða, að heyra til þín. Að þú skulir geta sagt annað eins, Adam! Auðvitað er ívarsen óttalegur síngirnis- durgur og nirfill. En þegar hann sýnir svona hlýtt lijartaþel gagnvart Roosevelt, hlýtur þó að vera eitthvað gott til í honum.“ „Auðæfi og æska eru hættulegir föru- nautar á lífsins leið. Og vel gæti verið, að Roosevelt hefði heldur átt að streitast sjálf- ur upp brattan Vitastíginn eins og við hinir.“ „O, brattann þann fær hann nú nógu snemma að reyna.“ „Þar sagðirðu sannara orð, heldur en sjálfa þig grunar, Fía-----jæja, jæja. Það er svo sem nógu bjart fram undan núna, Guð gefi, að það megi vara,“ sagði Adam og fór síðan upp í turninn til að fága ljós- kerið,. Úti á Bjarkasetri gengu hjónin um og litu köldum augum hvort á annað. Gottlieb var þar aldrei nefndur á nafn; en Sylvester hugsaði til hans á hverjum degi, er hann var í skóginum. Það var einkennilegt, hvað herragarðseigandinn var tekinn að sinna skógunum sínum mikið síðustu árin. Áður var það jarðræktin heima fyrir, sem hann helgaði allan áhuga sinn og krafta. Nú orð- ið leit hann varla í þá áttina, heldur lét hann ráðsmanninn sjá um allt þess háttar. Sjálfur fór hann til skógar, eins oft og tæki- færi gafst, helzt snemma á morgnana, og kom sjaldan heim fyrr en á kvöldin. I fyrstu lét hann Jens herramann fara með sér, þeg- ar hann var laus úr skóla, og þá fóru þeir um allan Hlynahrygg og lögðu fuglasnör- ur. Sylvester kenndi Jens öll þau smábrögð' og brellur, sem við veiðar þessar voru not- uð, að búa til snörur úr kvistum og tagl- hári og að festa þær á réttum stöðum og á réttan hátt, svo að þeir fengju fugla í þær. Jens hafði mikinn áhuga á þessu í upphafi, en varð brátt leiður á því og dró sig í hlé. Sylvester frétti alltaf öðru hvoru, að dreng- urinn væri farinn yfir í Straumhólms-vitar því að þar átti hann leiksystkini sín. Þóttí Sylvester þetta mjög eðlilegt, því að dreng- urinn þyrfti að fá að vera með jafnöldrum. sínum. og öðrum börnum. Hann fór þvíi einsamall til skógar og sinnti snörum sín- um. Oftast nær lagði hann leið sína um- „Sælureit". Það var eins og blettur sá drægr hann til sín með dularfullu magni. Jón ekill hvíslaði því að húsjómfrúnni, að þegar hann hefði ekið þar fram hjá einn daginnr hefði hann séð húsbóndann vera að byggja steinvirki uppi í Sælureit, alveg eins og smástrákar gera oft og tíðum. Og þau voru- bæði sammála um það, að húsbóndinn væri orðinn hálfundarlegur síðustu árin. Á kvöldin sat hann við skrifborð sitt og skrif- aði og endurskrifaði „Direktiver handa syni mínum Jens Sylvester Bramer.“ Frú Bramer sat í hægindastól sínum, með lítið borð fyr- ir framan sig og heklaði blúndur. Það hafði- hún gert á hverju kvöldi öll árin, sem hún hafði setið á Bjarkasetri, og því hélt hún enn áfram, vélrænt og tifandi eins og brúða. Grannir fingurnir héldu um heklunálinar og hvítur þráðurinn smaug og rann jafnt og þétt áfram. Frú Bramer var óbreytt enn. Engin- hrukka var sjáanleg í hinu fína og smá- gerva andliti; augu hennar voru enn jafn- hvöss og rannsakandi, er hún hringdi á> stofuþernuna og bauð henni að framreiða kvöldverðinn. Rödd hennar var enn jafn- þýð, einræn og ofurlítið tilbreytingarlau^- eins og áður. Hver stund sem leið fyllti út

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.