Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Qupperneq 30

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Qupperneq 30
24 VITASTÍGURINN N. Kv. verið þér sammála, Abla. En ég ætla að fara út í víða veröld. Ó, hvað ég ætla að syngja: Lífs míns er veröld væn, — vonin er fagur-græn. Ólundin grúfir grá, — gleðin er himin-blá, — tra — la — la — la!“ Og svo fór Auróra til Óslóar. Það var kvöld eitt í september, og tungls- skinið flæddi um allan Vitastíginn. Það var því ekkert vandratað, því að alla leið að neðan sást í toppinn á hvítum vitaturnin- um. Niður við ströndina silfraði tunglið smábylgjurnar, sem hoppuðu og skoppuðu um steina og sker, eins langt og auga eygði. En inni á ströndinni gekk unga fólkið fram og aftur, leit upp í tunglið og brosti — nú, eins og fyrir þúsundum ára. Jens herramaður hafði gengið fram og aftur fyrir framan símastöðina í hálfa klukkustund, og beðið eftir Benediktu. Síðan Auróra fór, var það orðin föst venja, að hann fylgdi Benediktu heim á hverju laugardagskvöldi. Öðru hvoru gat það líka komið fyrir í miðri viku. Hann labbaði þol- inmóður aftur á bak og áfram og nam stað- ar í sjöunda sinn fyrir utan glugga inn- römmunarmannsins, þar sem var til sýnis mynd af „Prins París, sem veitir fegurðar- verðlaunin". Honum virtist Aþena líkjast Benediktu, en Afrodite (Venus) minnti um Auróru. En hvorri þeirra hann myndi veita fegurðarverðlaunin, var harla torráðin gáta. Að svo stöddu hallaðist liann að Benediktu, þótt hún væri feimin og hlédræg. Auróra var allt öðruvísi; en hún hafði nú einu sinni hlaupið frá honum. Hún var blátt áfram. orðin stór upp á sig og montin, upp á síðkastið, sérstaklega síðan hún hafði feng- ið þessar lista-grillur í kollinn. En hamingj- an góða, hvað hún var kát og fjörug! Loksins kom Benedikta með litlu tösk- una sína í hendinni. Hann reyndi að mæta henni eins og það væri af einskærri tilvilj- un, að honum varð gengið fram hjá síma- stöðinni, og hún flýtti sér að segja: ,,E» góði, ert þú hérna?“ Þeim var víst báðum ljóst, að þeim tókst þetta hálfklaufalega;. þau litu hvort á annað og roðnuðu. Síðam gengu þau upp brekkuna og Vitastíginn. Öðru hvoru námu þau staðar og horfðu út á hafið. „Það er svo fallegt í kvöld,“ sagði hann, „Mér þykir hafið alltaf fallegt," sagðf hún. Þegar þau komu að mýrarsundinu, réttí. hann henni höndina til að styðja hana, er þau stikluðu á steinunum; en þegar þau; voru komin yfir um, sleppti hann ekki hendinni aftur. Hún dró hana að sér, en. hann hélt fast. „Má ég ekki halda í höndina á þér?"" sagði hann. „Til hvers ætti það að vera?“ spurði hún.. „Mér þykir svo vænt um þig,“ sagði hanm allt í einu. Hún kippti að sér hendinni og blóðroðn- aði. „Það segirðu líka við Auróru,“ sagði hún.'. stillilega. „Ekki á sama hátt,“ svaraði hann. „Er þá hægt að segja það á marga vegu?“ sagði hún og hló við. Því gat hann engu1 svarað. Þau gengu nú þögul yfir brúna og, upp að vitanum. „Viltu ekki koma inn?“ spurði hún. „Nei, þakka þér fyrir; ég verð víst að- hypja mig heim aftur.“ „Ertu þykkinn?" spurði hún allt í einu. „Nei, fjarri fer því. En einn daginn hljóp’ Auróra frá mér, hún vildi ekki einu sinni tala við mig, — og í dag svo — svo----- „Við erum samt vinir?“ spurði hún. „Já, auðvitað," svaraði hann með tilgerð- ar kæruleysi. „Góða nótt, Jens!“ „Góða nótt, Benedikta," svaraði hann og, gekk hægt ofan Vitastíginn. Hann bjóst við, að hún mundi hugsa sig um og kalla á hann, og því gekk hann hægt

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.