Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Síða 31

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Síða 31
N. Kv. VITASTÍGURINN 25 ofan eftir. En hún kallaði ekki. Hún hafði farið inn og lokaði á eftir sér. Jens .herra- maður skildi ekkert í þessu. Svo var að sjá, sem hvorug þessara bernskuvina hans vildi eiga hann. Og sjálfum var honum ekki fylli- lega ljóst, hvora þeirra honum þótti vænst um. Benedikta var svo hæglát og feimin, að hann fékk ekki einu sinni að halda í hönd- ina á henni. Hún var eins og styggur fugl; en hún var svo svipfalleg, þegar hún spurði hann áðan: „Ertu þykkinn?“ Hann hefði feginn viljað gera allt það, sem hún kynni að hafa beðið hann um í dag, því að lronum þótti verulega vænt um hana. En þegar hann var með Auróru, var hann einnig hrifinn af henni. Það var auðvitað heimsku- legt að hafa sagt þetta við þær báðar, því að Auróra hafði auðvitað sagt Benediktu það. En það var líka ókleift að standast Auróru. Hún hafði getað reitt hann til reiði og blíðkað á víxl eftir geðþóitta sínum. Þegar hann tók í höndina á henni, fékk hanh'að leiða liana upp allan Vitastíginn. Og einu sinni, þegar þau voru að fára yfir brúna. hafði hann kysst haiia, og hún hafði ekki orðið móðguð. Nei, Auróra var ekkert tepruleg á þann hátt. Jens herramaður hélt heim á leið og var í mjög miklum vafa. Þegar hann kom upp á Hlynahrygg, varð hann þess var, að einhver var inni í gamla sumarfjósinu í ,,Sælureit“. Hann leit inn um dyrnar. Þar stóð Sylvester faðir hans með öxi í hendi. ?,Nei, en pabbi; ert þú að gera við fjósið? Það hefði nú einhver piltanna getað ger't.“ „Já; en mér þykir nú gaman að því, skil- urðu. Mér þykir alltaf vænt um þennan gamla blett hérna.“ „Hefir þú líka byggt báða þessa steinkofa þarna?“ spurði Jens og benti á tvo litla kofa, sem hlaðnir voru úr stórgrýti, sinn hvoru rnegin í rjóðrinu. Sylvester hló lágt og dálítið vandræða- lega. „Ja-já, ég gerði það einn daginn. Ég hafði þá ekki annað verk með höndum. Mér datt í hug, að það væri gaman að gera „Sælureit" alveg eins og hann var, þegar ég var smá- strákur. Ég á margar minningar liéðan, eins og þú rnunt skilja.“ Þeir héldu af stað lreimleiðis að Bjarka- setri. Sylvester þagði lengi, en spurði svo að lokum: ,,Hvenær byrjar skólinn aftur, Jens?“ „Með október. Það er líklega bezt að reyna að ljúka þessu verkfræðiprófi, fyrst mamma vill svo gjarnan, að ég nái því.“ „Já, það ættirðu að gera. Hvenær ferðu þá?“ „Skólinn byrjar þann fyrsta.“ Allt í einu spurði Sylvester: „Varstu yfir í bænum?“ „Já, ég fór yfir um til að kaupa bókina þá arna.“ „Hittirðu kunnuga?" ;,Já — ég heilsaði upp á Benediktu Stolz.“ „Jæja, dóttur vitavarðarins. Hún kvað vera falleg og elskuleg stúlka," sagði Syl- vester og leit á Jens; en hann roðnaði og svaraði: „Hún er bæði falleg og góð stúlka.“ „Lizt þér vel á hana?“ spurði Sylvester. „Hvað áttu við?“ „Já, þannig, að þú vildir gjarnan ganga að eiga hana,“ sagði Sylvester og hló við. „Ég veit ekki almennilega^ pabbi. Annars lield ég nú ekki, að hún vilji eiga mig.“ „Ekki eiga þig?“ spurði hann hissa. „Æjá, þau í vitanum eru nú svo ólík öðru fólki.“ „Ólíkt öðru fólki?“ Sylvester nam staðar og leit á son sinn. „Þú veizt það, pabbi, að Adam Stolz lifir þarna í Vitaturninum eins og í sínum eigin lreimi. Allt það ,sem okkur þykir glæsilegt og mikilvægt, er honum einkis virði, og hann brosir af samúð að mönnum. Þau Benedikta eru ákaflega lík að skapgerð og skoðunum. Hún unir sér bezt þar efra; í hreinu og tæru lofti. Ég var svo oft þarna efra, þegar ég var strákur." 4

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.