Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Blaðsíða 32

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Blaðsíða 32
26 VITASTÍGURINN N. Kv. „Ég veit það, Jens. Þú skilui- auðvitað, að ég komst fljótt að því. Þykir þér vænt um. fólkið þar fyrir handan?“ „Þau eru betri en annað fólk. Ég hefi aldrei heyrt eitt styggðaryrði þar efra, og þegar við strákarnir rukum í hár saman, urðum við aldrei óvinir efitr á, því að vita- vörðurinn sagði æfinlega: „Berjist þið bara, strákar, því betri vinir verðið þið eftir á.“ „Það er alveg satt og rétt, Jens,“ sagði Sylvester. „Já, en hvers vegna voruð þið alltaf svo hrædd um, að ég væri með öðrurn strákum í uppvextinum? Ég varð að stelast til að vera með vita-börnunum.“ „Ég neitaði þér aldrei um það, drengur minn.“ ;,Ekki beinlínis þú — en mamma.“ „Æjá, mamma þín hélt sennilega, að það væri réttast og skynsamlegast. En annars þekkir hún ekki vitavarðar-fjölskylduna.“ „Já, en það er líka alveg afleitt, pabbi. Ég held að þið mamma bæði hefðuð gott eitt af því að kynnast þeim manneskjum. Gott- lieb frænda þykir reglulega vænt um þau.“ „Frétta þau oft af honum, þarna yfir í vitanum?“, spurði Sylvester. Jens varð for- viða, því að hvorugt foreldranna hafði minnzt á Gottlieb einu orði um langa hríð. „Já, þau fá bréf frá honum nær vikulega. Hann er í Ítalíu." ;,Ég veit það drengur minn.“ „Hann býr þar með norskum málara, sem frændi hefir hjálpað. Hann er gení, eftir því sem frændi skrifar. En hann er því miður heilsulaus og mjög veikur.“ „Gottlieb frændi hefir alltaf verið mjög laginn á það að finna gení,“ sagði Sylvester og hló við. „Já, en þessi málari, Sören gení, kvað vera alveg sérstakur afburða listamaður, það er víst satt, pabbi. Nú er hann orðinn svo frægur, að þó að hann selji ekki nema eina smámynd, fær hann hana svo vel borg- aða, að þeir frændi geta lifað í dýrð og vel- lystingum i heilt ár, og Auróra hefir fengið peninga til að stunda söngnám í Ósló.“ „Auróra?" ,5Já, fósturdóttir vitavarðarins. Það var hún, sem Gottlieb frændi tók að sér.“ „Jæja, er það hún. Já, hún hefir líka alizt upp í vitanum." „Já það er nú skemmtileg stúlka, skal ég segja þér. Hún er bæði fjörug og gamansöm og falleg." „Þú ert ef til vill hrifinn af henni líka?“ „O-nei, ekki er ég nú það beinlínis. En það er afar gaman að vera með henni.“ Sylvester nam staðar. „Skrifar Gottlieb frændi aldrei neitt um það, hvenær hann muni koma heim aftur?“ ,Nei, aldrei.“ 9 - „Spyr hann heldur ekki eftir okkur á Bjarkasetri?“ „Nei, aldrei, pabbi." Skugga af hryggð brá fyrir í svip Sylvest- ers. Hann stóð grafkyrr og horfði alvarlega á öxina, sem hann hélt á í hendi sér, og strauk vísifingri eftir hárbeittri egginni. „Gáðu að þér, þú getur skorið þig,“ sagði Jens hvatlega. „Það munai minnstu, hvort það er einu sárinu meira eða minna,“ sagði Sylvester lágt og gekk af stað. En Jens skildi það. Og nú skildist honum, að faðir hans syrgði allt- af bróður sinn sem aldrei kom heim aftur. 9 Þegar þeir komu ofan í trjágöngin, sem lágu heim að Bjarkasetri, nam Sylvester staðar. „Þegar þú hittir vitavörðinn næst, get- urðu sagt honum, að ég hafi spurt eftir Gottlieb frænda.“ , „Á hann ekki að skrifa neitt meira?" „Nei, drengur minn, þess gerist ekki þörf.“ „En pabbi, þú gætir þó beðið að heilsa honum og segja, að þér myndi þykja vænt um, ef hann kæmi bráðum heim aftur.“ ;,Nei, nei, það má hann ekki skrifa, Mömmu þinni myndi ekki geðjast að því.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.