Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Side 36

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Side 36
30 VITASTÍGURINN N. Kv. karlinn. Þeir £óru því inn í búð Sönnikens bakara, hinum megin göttunnar, og símuðu til ívarsens. Honum hafði förlast nokkuð heyrn upp á síðkastið og var því ófús að svara í síma. Nú sáu strákarnir, að hann mjakaðist með ístrubelg sinn ofan af háa stólnum og tók ósjálfrátt heymartólið: Halló — halló! Hann kreppti hnefann, eins og hann ætlaði að lemja heyrnartólið, klór- aði sér í höfði og bankaði með fingrunum á púltið. í stuttu máli: Drengirnir náðu til- gangi sínum: að gera hann öskuvondan! Loksins þeytti hann frá sér tækinu, svo að trektin hrökk af og datt niður á bak við eldiviðarkassann. Síðan tók hann að spíg- spora fram og aftur eins og tígrisdýr í búri. Þegar hann hafði gengið þannig um hríð, stillti hann sér upp við púltið, spennti greipar eins og til bænahalds, og leit upp í loftið. Strákarnir sáu, að hann tautaði eitt- hvað, en tæplega hefir það verið guðræki- legs eðlis. Þegar drengirnir komu heim aftur til ívarsens, settu þeir upp mesta sakleysissvip, svo að Anna eldabuska hafði aldrei séð á þeim annan eins. Hún hvíslaði að Roose- velt: „Ég skal segja þér, aðlcarlinn er í skap- inu sínu núna! Hann stjáklar fram og aftur í reykingaherberginu og er öskuvondur." I sama vetfangi kom ívarsen í dyrnar. „Hvers vegna geturðu ekki verið heima, svo að hann gamli, heyrnarlausi fóstri þinn þurfi ekki að passa símann, — ha? Nú hafa þeir verið að síma og síma og velt inn yfir mig pöntunum fyrir þúsundir króna. Verzl- unin tapar að minnsta kosti fimmtán pró- sent af ef til vill 10,000, — krónum. Það er reginhneyksli!" „Ég get nú ekki alltaf verið heima, fóstri,“ sagði Roosevelt. Hann hallaði undir flatt og setti upp mesta sorgarsvip. „Hann verður nú að koma út í hreint loft öðru hvoru,“ skaut Jens inn í. Honum fannst, að hann yrði að hlaupa undir bagga með Roosevelt. „Hreint loft!“ nöldraði ívarsen, „fær hann ekki nóg af hreinu lofti niðri í sjóbúð- inni — ha-a?“ — Drengirnir laumuðust síðan fram og. læddust upp í herbergi Roosevelts. Þar fleygði annar þeirra sér á rúmið, en hinn á legubekkinn og skellihlógu. Loksins hættu^ þeir og urðu rólegir á ný. Roosevelt stóð' upp og kallaði til Jens: „Upp á lappir, kæri mágur!“ „Gáðu að sjálfum þér, Roosevelt; en ef ég yrði nú mágur þinn!“ sagði Jens og hló. „Auðvitað verðurðu það. En hvor af stúlkunum okkar er það nú eiginlega, sem þú vilt helzt eiga — Auróra eða Benedikta?“" „Já, vissi ég aðeins það, þá væri vandinn leystur; en mér þykir nú jafnvænt um þær báðar.“ „Það er nú ófært, drengur minn; þú verð- ur að láta þér nægja aðra hvora. Við eruni' sem sé ekki mormónar héma í bænum.“ „Auðvitað verður það önnur hvor þeirra.“ „Þegar þú ert búinn að ákveða þig, verð- urðu að gera mér aðvart, og þá skal ég tala við mömmu. Þú veizt, að það er hún, sem hefir afskipti af þess háttar málum. Pabbi kærir sig í rauninni ekki um annað en vit- ann.“ „Auðvitað skrifa ég þér, þú sem ert bezti vinur minn. Ég fer nú bráðum til Óslóar til að næla í prófið það arna, en þegar því er lokið, verð ég að ákveða mig,“ sagði Jens og- brosti. „Já, þegar þér er ekki heitara en svo um hjartarætur, þá liggur þér ekkert á,“ sagði: Roosevelt. „Hefir þú aldrei verið ástfanginn, Roose- velt?“ spurði Jens. „Nei, ekki svona í alvöru. Þú þekkir hana' litlu bakaradótturina hinum megin, — húrr er yndisleg." „Ojá, jæja, svona á sinn hátt,“ sagði Jens „Svona á sinn hátt----svona á sinn hátfc

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.