Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Blaðsíða 51

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Blaðsíða 51
N. Kv. VITASTÍGURINN 45 ur, sem. sífellt lágu í rifrildi og bardögum, og heimilið þeirra á þessum stað kallaði hann „Sælureit“. Ég vissi ekki, hvað það átti .að þýða, en allir hlógu að því.“ „Ismail, Ismail,“ tautaði Fía, „hvaðan hafði hann það nafn?“ Nokkrir sundurlaus- ir kaflar úr biblíusögunum hringsnerust í kollinum á henni: — Hagar, eyðimörkin, manna og villt hunang, — en hún gat ekki ■ráðið fram úr því! „Ég veit ekki, hvaðan hann hafði nafnið. Mér þótti það fallegt, og eitthvað hefir .hann sennilega meint með því,“ sagði Abla .að lokum. Fía lofaði henni því, að Abla skyldi .grennslast eftir, hvað orðið hefði af drengn- um, og Abla var henni mjög þakklát fyrir .það. Hún vildi helzt fara sjálf til Adams og skýra honum dálítið nánar frá málum; — en Fía sagði, að það væri alveg óþarft: ,,Og jþar að auki er „Vitastígurinn“ allt of erfið- ■ur fyrir gamalmenni; nei, yður skal verða hlíft við því, Abla. Þér hafið stritað nóg á .ævinni, svo að þér eigið að fá að sneiða hjá honum!“ Fía hélt síðan heimleiðis harðánægð með ■erindislok sín. Hún hafði að minnsta kosti homizt að því, hvað það væri, sem amaði að 'Öblu gömlu. Fyrir utan vitann mætti hún lækninum, sem hafði brugðið sér upp til Adams. „Jæja, hvernig gekk nú þetta, frú Stolz?“ ikallaði hann á móti henni. „Þetta lagast allt sarnan," svaraði Fía, „hún þarf ekki á neinum lækni að halda, jþað eru andleg meðul, sem hún þarfnast.“ Kröger læknir brosti. Hann langaði mjög til að hlusta á Fíu, þegar hún færi að út- deila sínum „andlegu meðulum!" Þegar Fía kom heim, hengdi hún þegar upp skrauthattinn og hét því með sjálfri sér, að hann skyldi hún ekki setja upp nema við mjög hátíðleg tækifæri, eins og til dæm- is þegar smátelpurnar einhvern tíma færu •að gifta sig. Adam vék ekki einu orði að Öblu gömlu og áhyggjum. hennar; hann sneiddi helzt algerlega hjá að hafa nokkur afskipti af læknisstörfum Fíu. Á hinn bóg- inn varð Fía að íhuga rækilega, hvernig hún ætti að snúast við máli þessu. Til voru ýms- ar tegundir ,,meðala“ við þess háttar plág- um, sem Öblu þjáðu. Það væri nú heldur ekki barnaskapur að biðja Adam að fara til prestsins og sárbæna hann um að rannsaka og leita í gömlum kirkjubókum að hálfrar aldar gömlum atburðum! Enda hafði það ekki verið alvara Fíu, þótt hún segði svo við Öblu gömlu. Það gæti annars verið nógu gaman að vita, hver verið hefði faðir þessa drengs; því að tæplega hefði sútarinn getað leynt nafni sínu, þótt ríkur væri. En eitt- hvað yrði hún til bragðs að taka, hugsaði Fía, svo að aumingja Abla fengi frið í hug og hjarta. Það var nú annars óskiljanlegt, að fólk skyldi vera að kvelja sig sjálft með þess háttar hugsunum og gömlum áhyggj- um. í dag átti Benedikta að taka póstinn hjá ívarsen, þegar hún væri búin á símastöð- inni. Hún hitti Roosevelt, sem bað hana að koma með sér inn í skrifstofuna. Þau voru þar tvö ein, og Benediktu virtist hann svo undirfurðulegur og hálffeiminn. Hann rétti henni bréf til „Pabba og mömmu“. Hún sá þegar, að það var skrift Auróru. Benedikta stokkroðnaði og leit spurnaraugum á Roosevelt. „Ég fékk líka bréf,“ sagði hann. „Frá Auróru?“ „Nei, frá Jens herramanni." „Hvað er liann að skrifa þér?“ „Roosevelt hló. — „O, við tveir höfum nú svo margt saman að sælda — þú mátt vel lesa það.“ Hann tók upp bréfið og lagði það opið á púltið. Hún snerti það ekki, en hvarflaði augum yfir ávarpið. Þar stóð skrif- að: „Kæri mágur minn!“ — Roðinn hjaðn- aði í kinnum hennar og Roosevelt sá, að hún fölnaði í andliti. Honum hafði aldrei
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.