Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Side 53

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Side 53
24, Kv. VITASTÍGURINN 47 heilann um Öblu gömlu og drenginn henn- ar, en þó ekki komizt að neinni niðurstöðu. Loksins gafst hún alveg upp, settist á stól rneð hendurnar í fanginu og beið þess, að forsjónin kæmi henni til hjálpar. Fía var Æasttrúuð á forsjónina! Væri hún í einhverj- um kröggum, komu alltaf einhver bjarg- ráð óvænt upp úr kafinu. Eins og til dæmis þegar Adam átti að greiða reikninginn hjá Ivarsen, og þau voru alveg ráðalaus. Þá kom forsjónin allt í einu með selina tvo í eftir- dragi! Auðvitað gat Fía ekki gert sér ljóst, hvað þessi forsjón eiginlega væri. Guð almáttug- -ur hafði í svo mörg horn að líta og mikil- vægum málum að sinna, að hann gat tæp- lega verið að snúast í öðrum eins smámun- um sem reikningnum hans ívarsen og •drengnum hennar Öblu. Nei, það hlaut að vera einhver önnur máttarvera, eins konar hæjarsendill, sem hann hefði vistað hér neðra til að afgreiða ýmisleg smámál og léttavöru. Og hvernig sem þessu annars var farið, hlaut forsjónin að vera liðlegur og greiðvikinn náungi, sem gerði mönnum margan greiðann! Meðan Fía sat þannig og beið eftir forsjóninni, fór hún að vinda upp band og fann þá af tilviljun gamalt umslag og ætlaði að vinda upp á það. Hún leit þó fyrst utan á það; það var frá frænda hennar í Ameríku. Aftan á umslaginu stóð utaná- ^skrift sendanda: Mr. Emil Martinson 15th Street Nr. 62 Duluth — Minnesota U. S. A. Fía las bréfið án þess að hugsa nokkuð út í það, en svo allt í einu var eins og hvíslað að henni: „Geturðu ekki sagt Öblu, að •drengurinn hennar lifi í mestu velsæld og ■velgengni í Ameríku?" Þetta var forsjónin! Hún sneri sér við til að horfa á eftir henni, ■svo greinileg hafði röddin verið. Hún sat lengi og sneri umslaginu í höndum sér, og loksins strauk hún það með fingrunum og slétti úr hrukkunum nokkrum sinnum. Nei, það getur ekki verið neitt rangt í því. Abla mundi verða róleg og ánægð það sem eftir væri ævinnar. Lygi? Já, að vísu væri það lygi; en fyrst var nú það, að for- sjónin hafði hvíslað þessu að henni, og á hinn bóginn gat Fía ekki skilið, til hvers lygi ætti að vera, ef ekki mætti nota hana til að gera manneskju hamingjusama. ,,Já, er það ekki, eins og ég hefi alltaf sagt,“ hugs- aði Fía: „Forsjónin sú arna ríður ekki við einteyming!" Það kom nú slíkur asi á Fíu, að hún gleymdi að setja upp kaffiketilinn. Hún hljóp fram í ganginn og fleygði skýluklút á höfuðið. Nú var ekki um skrauthattinn að ræða, og lieldur ekki um „kjusuna". Aldrei áður hafði Fía hlaupið jafn-hratt ofan „Vitastíginn" sem núna. Það lá við, að hún stigi dansspor. Umslaginu hafði liún stung- ið í barm sinn. Já, blessaður himnafaðirinn, sem öllu stjórnar svo vísdómlega og skipar öllu vel fyrir okkur breyskar mannskepnur, hann var umhyggjusamur og hugkvæmur! Abla varð hálfhissa, þegar Fía kom þjót- andi inn í eldhúsið svona snemma morsuns „Ég hefi góð tíðindi að færa yður, Abla, hugsið yður, ég hefi snuðrað uppi drenginn yðar, hann er í Ameríku!“ „í Ameríku?" „Já, víst er hann í Ameríku. Hvar ætti liann annars að vera? Haldið þér kannske — að svona — svona utanveltubörn eigi sér nokkra framtíð hérna heima? O — sei — se — nei, — þeir fara vestur og verða þar mikl- ir menn og háttvirtir!" Abla sat lengi og braut heilann. Þessar fréttir komu svo óvænt og voru svo nær- göngular, að hún varð að átta sig. Ameríka var ógnarlangt í burtu. Henni fannst, að hann gæti verla verið lengra burtu, þótt hann væri dáinn. (Framhald).

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.