Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Qupperneq 55

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Qupperneq 55
 r ____ r KJÁRTAASUTGAFAN Vel gerðar og létt skrifaðar skemmtisögur hafa ávallt verið og munu verða ein- hver vinsælasta dægradvölin öllum þorra manna, og það er viðurkennt af mörgum ágætustu mönnum, þeim, er við andleg störf fást, að betri hvíld fyrir hugann verði tæplega fundin, heldur en við lestur þeirra. En það verður að játast, að í engri tegund skáldskapar er svo skammt öfganna á milli sem þar. Með það fyrir augum hefur HJARTAÁSÚTGÁFAN kostað kapps um að gefa út eingöngu frægar bækur víðkunnra ritsnillinga í skemmtisagnagerð, og nú síðast hafið útgáfu hins fræga sagnabálks, ÆFINTÝRI DÝRLINGSINS, eftir einhvern snjall- asta og víðlesnasta nútímahöfund í þessari bókmenntagrein, LESLIE CARTERIS, höf- undinn, sem hefur skapað einhverja hina óviðjafnanlegustu skemmtisagnapersónu heimsins, SIMON TEMPLAR, ræningjahetjuna, sem bófar undirheimanna óttast eins og skollann sjálfan, en sem jafnan á í baráttu við einn kænasta lögreglumann Lun- dúnaborgar, Teal. Kemur hann við sögu í flestöllum æfintýrum Dýrlingsins. Hann stendur oft augliti til auglitis við hið sólbrennda andlit æfintýramannsins, og æfin- lega ráðþrota, því að Dýrlingurinn lætur ávallt það óvænta ske og er engum öðr- um líkur. SIMON TEMPLAR er hinn síkáti krossfari í nútímastíl, og hann mun eiga eftir að fara sigurför um íslenzk byggðarlög í sveit og við sjó. Hann er einhver frægasta æfintýrahetja, sem nokkur skemmtisagnahöfundur hefur' skapað. — Harðsvíruðustu auðkýfinga rænir hann á ótrúlegasta hátt og beitir þá fáránlegustu brögðum. Hann er eldfljót skammbyssuskytta, meistari allra meistara í skylmingum og snillingur í að dulbúa sig, en hann er líka alls staðar á ferðinni til hjálpar, frelsar þá saklausu úr klóm illræðismanna, kemur og hverfur á ótrúlegustu stöðum. Ástaræfintýri mörg er hann riðinn við, án þess að lenda í þeim sjálfur. En . . . óviðjafnanlega fögur stúlka er förunautur hans og félagi í flestum hinum hættulegu æfintýrum. HÖFUÐPAURINN og HEFNDARGJÖFIN heita tvær fyrstu sögurnar, sem út eru komnar, og tvær koma seinna á þessu ári, — KONUNGUR SMYGLARANNA og STJÓRNARBYLTING í MIÐ-AMERÍKU. í prentun er fyrsta bókin úr vinsælasta skemmtisagnaflokki Norðurlanda, hin- um hrikalegu æfintýrasögum um norska TRÖLLIÐ OG BARDAGAMANNINN, JONAS FIELD, eftir ÖVRE RICHTER FRICH. Þessi saga heitir HINIR ÓGNANDI HNEFAR. Hjá HJARTAÁSÚTGÁFUNNI eru áður komnar út eftirtaldar bækur: Georg Si- menon: Dularfulla morðið. Sami höfundur: Skuggar fortíðarinnar. Agatha Christie: Þegar klukkan sló tólf. Ludwig von Wohl: Ást æfintýramannsins. Þessar fjórar bækur eru nær því uppseldar.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.