Nýjar kvöldvökur - 01.10.1946, Blaðsíða 52
186
BÆKUR
N. Kv.
ar en aðrar lélegar, og ýmsar prentaðar áð-
■ur í nær óbreyttri mynd. En yfirleitt er frá-
sögnin góð frá hálfu safnandans, málið dá-
lítið sérkennilegt sakir orða, sem eru altið
þar eystra en ókunn annars staðar. Búning-
ur safnsins til prentunar er hins vegar í lak-
asta lagi.
Annars á útgáfa þessi sérkennilega sögu.
Upplagið lenti í bruna, og keypti kostnað-
armaður þann liluta þess, er óskemmdur
var. Mundi hann sjálfur hafa gengið all-
miklu betur frá títgáfu þessari, hefði hann
um hana vélt frá upphafi. En hins vegar
mun þó öllum, sem sækjást eftir þjóðlegum
fræðum, þykja fengur í bók þessari.
Ingurm Jónsdóttir: Gömul kynni. Útgef.
Þorsteinn M. Jónsson. Akureyri 1946.
Það mun ekki ofmælt, að fáum eða eng-
um íslenzkum minningabókum hafi verið
jafn vel tekið og bókum frú Ingunnar Jóns-
dóttur frá Kornsá: Bókin mín og Minning-
ar. Þær hafa nú Verið uppseldar um mörg
ár og mjög eftirspurðar. Það má því vera
óblandið fagnaðarefni öllum bókavinum,
að Þorsteinn M. Jónsson hefir gefið þær út
á ný í vandaðri útgáfu, en bætt er við all-
miklum minningum, er höf. hefir ritað á 9.
tug æfinnar. Hefir frú Guðrún Björnsdótt-
ir, dóttir höf., búið bókina til prentunar og
skrifað með henni athyglisverðan formála.
Ingunn Jónsdóttir níræð, ásamt dótturbörnum sínum.