Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Síða 12

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Síða 12
50 ÖLAFUR í GRÓÐRARSTÖÐINNI N. Kv. andi íslendingar, en Nýjar Kvöldvökur vilja iræða lesendur sína dálítið um Iielztu æfi- atriði þessa starfssama og fjölþætta rnanns. Ein fegursta býggð íslands eru Skógar á FJjótsdalshéraði. Eru þeir efsti lrluti Valla- hrepps, norðvestan Hallormsstaðaháls við Lagarfljót, fegursta vatnfall landsins, þar sem það er breiðast. Þar er stórvaxnasti skógur íslands, Hallormsstaðaskógur. A bænum Freyshólum i Skógum er Olafur Jónsson fæddur lrinn 23. marz árið 1895. Faðir Ólafs var Jón Olafsson frá Mjóanesi. Olafur í Mjóanesi var bróðir Sölva í Kaup- angi, en þeir voru synir Mágnúsar Eiríks- sonar á Brekku í Fljótsdal. Kona Magnúsar var Guðrún dóttir Jóns fríska, Andréssonar á Aðalbóli. Guðbjörg, amma Ólafs Jónsson- ar, kona Ólafs í Mjóanesi, er sagt að komin væri af séra Stefáni skáldi Ólafssyni r Valla- nesi. Móðir Ólafs var Hólmfríður, dóttir iþeirra hjónanna Jóns Guðmundssonar og Ljósbjargai Magnúsdóttur, sem bjuggu lengi fyrir og unr síðustu aldamót að Freys- hólum. Ólafur ólst upp á Freyshólum hjá foreldrunr sínum til ársins 1906. Þá fluttist lrann með Jreirn eitt ár til Reykjavíkur. En er þau fluttu aftur austur fór Ólafur að Kóreksstöðunr r Hjaltastaðaþinghá til Sveins bónda Björnssonar og konu Jrans Guðrúnar Jónsdóttur, er var móðursystir Ólafs. Árin eftir fermingu var Ólafur í vinnumennsku á ýmsum bæjum í Hjalta- staðaþinghá.þar til vorið 1914, að hann fór í Egilsstaði til Jóns Bergssonar. Haustið 1915 fór Ólafur í bændaskólann á Hvanneyri og ritskrifaðist þaðan vorið 1917. Að loknu prófi lór liann gangandi alla leiðina norður uirr land og austur á Hérað og var næsta ár hjá foreldrum srnum á Kollsstaðagerði á Völlunr, en þau sáu jrai urrr bú, er Þorsteinn Jónsson katrpfélags- stjóri á Reyðarfirði hafði jrar. Vorið 1918 réðst Ólafur starfsmaður til Búnaðarsambands Borgarfjarðar, og lagði þá enn undir sig land fótgangandi alla leið- ina artstan af Fljóstdalshéraði og suður til Borgarfjarðar. Vann Ólafur eitt ár hjá Bún- aðarsambandi Borgarfjarðar við plægingar, mælingar jarðlróta og eftirlit með naut- griparæktarfélögum. Næstu tvö ár þar á eftir var Irann á Hvanneyri við ýms störf. Vorið 1921 sigldi Ólafur til Dannrerkur . Dvaldi lrann þar fyrst sumarlangt á tilrauna- stöð, „Statens Moseforsög“, við Herning á Jótlandi ,en um haustið lróf hann nánr við landbúnaðarháskólann í Katrpmannahöfrr og lattk þaðan búfræðinártri vorið 1924. Var honurrr Jrá veitt framkvænrdastjórastaðan við Ræktunarfélag Norðurlands ,og frá próf- borðinu lrélt hann rakleitt héirn og tók við frairnkvænrdastjórastöðunni 1. júní þá urrr sumarið. Arið 1925 kvæntist Ólafur ágætri konu, Guðrtinu Halldórsdóttur, Sigurðssonar, verkstjóra í Reykjavrk ogeiga þau tvær dæt- ur á lífi, Björgu 20 ára og Hólmfrrði 11 ára. Þegar Ólafur konr til Ræktunarfélagsins, var ræktað land þess um 35 dagsláttur (nal. llha.) nreð trjáræktinni nreðtalinni. Upp- skeran var þá 220 hestar taða, 8 tn. kartöflur og 8 tn. rófur. Á þeim 23 árum, sem Ólaf- ur hefur staðið fyrir Ræktunarfélagin'.t, hafa tún Jress tvöfaldast, en töðufengur fimmfaldast. Kartöfluuppskeran er um 150-200 tn. á ári og rófur 50-60 tn. Á þess- urrr áruin lrafa öll hús stöðvarinnar verið endurbyggð og stórunr aukin, nenra íbúðar- húsið, senr þó hefur verið nrikið endurbætt. \rerkfæri og vélar lrafa verið keypt og hrein eign félagsins hefur margfaldast. Starf sitt senr .framkvænrdastjóri Ræktunarfélagsins lrefur Ólafur rækt nreð samvizkuserni og dugnaði, en með nákvæmni og þrautsegju vísindanrannsins. Auk framkvæmdastjórastarfsins lrafa Ólafi verið falin á lrendur ýnrs trúnaðarstörf. Bún- aðarjringsfulltrúi lrefur hann verið síðan 1927. Hann lrefur verið fornraður Búnaðar- sambands Eyjafjarðar frá stofnun sarnbands- ins 1932, bæjarfulltrúi á Akureyri 1929-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.