Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Side 13

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Side 13
N. Kv. ÓLAFUR í GRÓÐRARSTÖÐINNI 51 1954 og í jarðræktarnefnd kaupstaðarins frá H)2!) og þar til bæjaráð tók við störfuni þeirrar nefndar 1946. Um l(i ár hefur hann verið í bókasafnsnefnd Amtsbókasafnsins á Akurevri. I tilraunaráði jarðræktar befur og Olafur átt sæti síðan það var sett á stofn 1940. Ólafur hefur verið ritstjóri Ársrits Rækt- unarfélags Norðurlands síðan hann tók við framkvæmdastjórn þess, og hefur bann sjálf- ur skrifað meginið af efni ritsins. — Helztu ritgerðir hans í Ársritinu eru Sáðsléttán og Belgjurtir, er báðar hafa komið út sér- prentaðar. í Náttúrufræðinginn hefur Ól- afur ritað nokkrar greinar náttúrufræði- legs og landfræðilegs efnis. Þá hefur hann og skrifað nokkrar greinar í Frey og Búfræðing- inn. Erindi, svo hundruðum skiftir, liefur Olafur flutt á bændafundum, við skóla og í útvarp. Hafa þau flest verið búfræðilegs efnis. Stærsta afrek Ólafs sem rithöfundar er bókin Ódáðahraun, sem kom út 1945 í þremur stórum bindum. Er þetta jarðfræði- Fegt, landifræðilegt og sögulegt rit um þenn- an æfintýraheim íslendinga á fyrri öldum, en sem nú er búið að svifta dularblæjunni. En við þennan öræfaheim hefur Ólafur Jónsson tekið ástfóstri og skrifað um liann eitt af þeim ritum, sem sígilt mun verða um aldaraðir í íslenzkum bókmenntum. í lorspjalli fyrir bók sinni, Ódáðabraun, kemst Ólafur meðal annars svo að orði: ..Fig var fulltíða maður, er eg í fyrsta sinni sá brunahraun. Það er ekki til á bernskustöðvum mínum, og oft fer svo, að okkur finnst það landslag eitt fagurt, sem við höfum vanizt í æsku. Hér fór þó á annan veg. Mér fannst hraunið strax fagurt og töfr- andi. Þar fann eg hina dulrænu, ósjálfráðu, óháðu list, og bún beillaði mig. Síðan finnst mér ekkert landslag fullkomið, ef hraun skortir. Auðvitað er Jretta ekki búmann- legt sjónarmið og vitnar um það öðru frem- ur. hve blendinn eg er í trúnaði við stöðu mína og stétt, en svona er þetta nú samt, og blygðast eg mín ekki fyrir að játa það, Jo\í að ef til vill sést máttur lífsins og seigla gróandans bvergi betur en í hrauninu. Þar má oft sjá, bvernig steinarnir breytast í brauð og dauðir rísa upp." Ólafur Jónsson er fjölþættur maður, bóndi, fræðimaður, göngugarpur, land- könnuður, vísindamaður og skáld; en Jretta könntiður, vísindamaður og skáld. — Hann stendur á traustum, breiðum grund- velli og er bvergi meðalmaður. Hann er ekki beizlaður að neinnri stöðu né stétt eða starli. Hann er yrkjandi skáld í starfi sínu og í skáldskap sínum og ritum er hann bóndinn og náttúrudýrkandinn, sem túlkar bið heilbrigða líf. Tvö skáldrit eru nýkomin út eftir Ólaf Jónsson. Er annað Jieina skáldsaga, sem hann nefnir Örœfaglettur, og hitt er ljóða- bók, sem hann kallar Fjöllin blá. Titlar beggja ‘þessara skáldrita túlka giöggt livert liugur Ólafs leitar oftast. Fyrsta kvæðið í ljóðabókinni hefst Jrannig: „Fylgdu mér á fjöllin blá, fram til efstu tinda! Jiar sem breiðum fanna ftá fellur mórauð jökulsá. Bjartar jökulbungur gljá. Blása svipir vinda. Svanir á vötnum synda. Yfirgefðu ys og þys, útvarp, bíla, shna, ' orðaskvaldur, glaurn og glys. Gakktu af stað við sólarris. Láttu andans brenna blys. — Burt með rúm og tíma. — Bezt við bratta að glíma.“ Ólafur er náttúrubarn. í kvæðinu Vorprá segir hann: „Syngjandi fljúga, að fuglanna hætti. til fjalla á vorin ég skyldi, ef mætti 7*

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.