Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Qupperneq 36

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Qupperneq 36
N. Kv Garl Ewald: Dyveke. Saga frá byrjun 16. aldar. jónas J. Rafnar þýddi. Framhald. 21. kap. Stjörnuspámaðurinn. Esge Bilde íékk Hagenskógariiöll og lén á Fjóni, og Torben Oxe varð hallarstjóri og Iénsmaður yfir Kaupmannahafnar-léni. Hann byrjaði á því að víkja Hans Faaborg frá, en ritarinn fór til konungs og bar sig svo illa, að hans náð kom honum aftur í stöðuna. „Hann er skálkur," sagði Torben Oxe; „yðar náð mun sjá eftir góðseminni við hann.“ „Standið hann þá að skálkapörunum," svaraði konungur, „hann er yður undirgef- inn. Hann bar sig svo aumlega, að mér rann það til rifja.“ Kristján konungur hafði líka aðra á- stæðu, sem hann sagði ekki hallarstjóran- um, og hún var sú, að Hans Faaborg hafði tekizt að koma sér í mjúkinn lijá þeim mæðgum, Sigbritu og Dyveke. I>ótt honum væri svona illa tekið í fyrstu, kom hann aftur daginn e.ftir og oft síðan 02 serði mæðg'unum margs konar greiða. O O O e> 1 ’ Brátt liafði hann fengið þef ai því, hve mikils Sigbrit mátti sín hjá konungi, og hann bar lienni fljótt og greinilega allar þær fregnir, sem hún spurði hann um. Hún fann, að hann var nothæfur, og' sagði kon- ungi það. „]á,“ mælti konungur, „eg lief oft haft ganran af masinu í honum, en þér skuluð varast að treysta því um of, því að þrír fjórðuhlutar af því er lygi og óhróður." „Nú.“ svaraði hún, „eg veit ekki betur en að slíkur maður eigi heima við konungs- hirð, og liann er ekki verri en aðrir.“ Hans Faaborg hjáipaði Dvveke í epla- garðinum. Hana iangaði til að eiga rósareit eins og í Osló, og hann útvegaði henni fail- ega runna, setti þá niður á sólríku svæði og lézt hafa allan hug á verkinu. Hann útveg- aði henni líka stórt búr lianda dúfunum, sem hún hafði ekki þorað að sleppa lausum, því að hún var hrædd um, að þær hyrfu út í buskann. Hann gat staðið hjá henni og gert gælur við dúfurnar og þótzt vera eins barns- legur í sál og Dyveke sjálf, og þegar þau fóru að \erða málkunnug, kvartaði liann unr þungbært hlutskipti sitt í lífinu; hann væri af lágum stigum og því lágt settur, svo að hann gæti aldrei verið í l'lokki með hinuin dramlátu ogþóttafullu aðalsmönnum. Lang nrest kvartaði hann undan Torben Oxe. Þar bárust orð hans í rétt eyru, því að Dyveke gat aldrei fyrirgelið þessum unga aðals- manni, hve dónalega hann hafði hegðað sér fyrsta daginn á nýja lreimilinu hennar. Torben kom þangað seint og snemma, stundum í fylgd með konungi, stundum einn. Hann hneigði sig djúpt fyrir Sigbritu og snoturlega fyrir Dyveke, horfði ;i hana ástþrungnum augttm og andvarpaði við. Oft hafði hann lút sinn með sér og stytti þeim stundirna rmeð stuttum frönskum sönglögum, sem hann flutti framúrskar- andi vel. Honum tókst líka að heilla Edle
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.