Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Blaðsíða 15

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Blaðsíða 15
N. Kv. ÓLAFUR í GRÓÐRARSTÖÐINNI 53 er ekki að öllu eins slæm eins oar söamrnar o o um hana tjá. Skáldið lætur hana segja: „Ula segja ýtar mig. Eg skal liata þá. Aðeins bömin ómálga elska Jóka má.. Þeim varð aldrei heift í hug, hrein er þeiiTa sál, þekkir ekki þessa heims þyngsta vandamál. Ungabörnin eru vís, eklri verða flón.“ Það er hatur mannanna, sfem gerir J óku slæma, en hún er ekki verri en það, að hún elskar ómálga börnin. Hún, afturgangan, á því í hugskoti sínu fræ kærleikans, er mun leysa hana úr álagahjúpi afturgöngunnar. Slik er lffsskoðun Olafs Jónssonar. Hann trúir á mátt fræsins, mátt kærleikans, er alls staðar sé að verki, jaifnvel í innstu fylgsnum íorynja mannlífsins. í ljóðum Olafs er mikið mannvit og heilbrigðar lífs- skoðanir, og eg tel, að hann eigi sæti allinnarlega á ljóðskáldabekk núlifandi ís- lendinga. Saga Ólafs, Orcefaglettur, er útilegu- mannasaga frá fyrri tímum, og gerist uppi á hálendi Islands. Ungur maður, sem rang- lega hefúr verið sakaður um glæp, strýkur og sezt að á gras-óasa norðan jökla. Hann bvggir sér kofa í hraunjaðri, rænir fé úr næstu afréttum sér til matar og til þess að konia sér upp fjárstofni til þess að lifa af, snarar fugla, grefur upp hvannarætur, kveikir eld með stáli og tinnu og býr sér til föt og rúmflet úr sauðargærum. Hann lifir þar lífi liins frumstæða manns, en einveran þjáir hann. Um haustið villist ung stiilka á grasa.fjalli, verður á leið hans, og hann fer með hana til kofa síns. Þegar liann verður ' ar \ ið óyndi liennar og að hún er köld og afskiptalaus og lítur á hann sem afbrota- mann, þá reynir hann að koma lienni aftur 01 byggða, en það mistekst, og dvelur hún hjá honum í kofanum um veturinn. A að- fangadagskvöld segir hann henni söguna um orsökina til þess, að hann gerðist úti- legumaður. Samt líður veturinn svo, að hún er honum fráhverf, en urn vorið, þá bráðn- ar klakahjúpurinn, og hún hverfur til hans. Lífið verður þeim indælt ævintýri. Þau reika um sumarið austur heiðar, njóta.hins frjálsa l.í-fs í ríkum mæli og komast um haustið í liollenzt skip, er þau sigla með til útlanda. Inn í söguna tvinnar höfundurinn náttúrulýsingum. Og er ekki tilgangur liöf- undarins með sögu þessari, að kynna lesend- um sínum landið norðan og norðaustan Vatnajökuls? Hinn ungi útilegumaður og unga stúlkan eru andar öræfanna. Astir þeirra eru ást höfundarins á liinum óbyggðu auðnum íslands. Þessi skáldsaga heyrir ekki til nútíðartízku-bókmenntum. Hún er ó- snortin af erlendum straumum, sem flætt hafa inn yfir landið á seinustu tímum. Hún er ósnortin á sama liátt og öræfi Islands eru enn ósnortin af áhrifum erlendrar tækni- menningar. Hún ber þess engin merki, að liöfundurinn hafi lifað tvö veraldarstríð, lif- að eina spilltustu öld mannkynsins. Sagan tilheyrir ómenguðum rómantískum bók- menntum. Hún er eins og hreint og ómeng- að lindarvatn. En þær bókmenntir lifa lengst, sem ekki eru tízkubókmenntir, en geyma sígildan skilning á mannMfinu og til- verunni og ttdka sígilda fegurð. Eg vil hvetja sem flesta til þess að lesa bækur Ólafs Jónssonar. í þeim er lieilnæmt andrúmsloft og sólarbirta, enda kemst hann svo að orði í einu kvæði sínu: „Sál mína baða eg í ljóssins öldum." Það mun og hann vilja, að allir lesendur sínir geri. Þ. M. J.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.