Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Qupperneq 22

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Qupperneq 22
60 OLDUKAST N. Kv. eftir því sem verkast vill. Hún verður alltaf við baðið. °n við höldum okkur lieima eins og vant er.“ „Þarna skutust þau nú inn í laufskálann," mælti Margrét. „Og þar inni cr blómanganir alit of mikil og óholl," anzaði frúin. „Hlauptu niður til þeirra „Æ, nei, góða mamma, lofum þeim að vera sjálfráðum! Eg er líka svo þreytt í kvöld og ekki með sjálfri mér.“ „Þú ert: að gráta?" mælti frúin og brá nokkuð. „Nei, eg er ekki að gráta, en mér er svo ómótt af hita og svo. ... Eg á eftir að læra svo rnikið." „Þú ferð snemma á fætur í fyrramálið." „Þarna koma þau!“ — Margrét leit út og sá Jrau koma upp riðið. „Berðu þá inn kryddbrauð og vín og láttu Jjað vera af góða portvíninu." „Portvíninu, sem Jrú átt að drekka þér til heilsubótar?" „ Já, eg get fengið meira af því hvenær sem eg bið um það.“ „En þú biður aldrei um meira af því, elsku, hjartans mamma mín!“ „Vertu nú hlýðin og góð dóttir!" mælti frúin blíðlega og klappaði alúðlega á kinn- ina á dóttur sinni. „Þú ert sú einasta manneskja, sem eg verulega ann í allri veröldinni!" svaraði Margrét í ákafri geðshræringu. „Þetta máttu ómögulega láta þér um munn fara, elsku Magga mín,“ anzaði frúin og mátti sjá að henni þótti talsvert. „En hvað guðdómlega fagurt er þarna niðri í garðinum!" hrópaði ungfrú Kruse, „og hvíiík unun má Jiað vera yður, ungfrú Bloch, að mega sitja Jiar og sökkva yður nið- ur í ýmis konar draumóra." „Eg kann nú samt betur við míg fyrir ut- an grindurnar, t. d. niður við ströndina og horfa á öldurnar skella og springa á klett- unum; það er svo miklu stórfelldara og til- komumeira," svaraði Magga. „Þú ert nú svoddan fjörkálfur! tók Holgeir fram í og lagði hendurnar á axlir fóstursystur sinnar. „En annars ver eg öllum stundum til lest- urs í seinni tíð,“ hélt hún áfram. „Vesalings Magga, þú ert auðvitað að búa Jiig undir prófið," svaraði Holgeir brosandi. „Annars á mikill lestur víst fremur illa við Þi g-“ „Af hverju dregur þú það, góði Holgeir?-' spurði frá Bloch. „Margrét er þó vanalega með Jieim efstu í sínum bekk.“ „Já, eg veit það ,en það á hún iðni sinni og ástundun að þakka, og víst er hún hneigðari fyrir hússtörfin." „Já, eg Jiarf svo oft á henni að halda mér til hjálpar og þess vegna á hún það hjá sér að geta einnig verið umsýslusöm innan- húss,“ svaraði frúin alvörugefin. „Hitn er þá svona fjölhæf; Jiað er munur eða eg, sem er svo löt og klaufaleg við öll innanhússstörf og vil helzt á engu snerta nema hljóðfæraslætti.“ tók nti ungfrú Kruse fram í. ,,Já, en um yður er nokkuð öðru máli að gegna; þér eruð þeirri listagáfu gædd, að fást við söng og hljóðfæraslátt,” mælti Hol- geir og horfði með óblandinni undrun og aðdáun á ungfrúna. Margrét setti bakkann á borðið og heyrði um leið fagurmælin um listgáfuna; hún fann vel, að hér var henni stungin sneið, því að hún var ekkert fyrir söng og hljóðfæra- slátt gefin. „Viltu gera svo vel og skenkja á glösin, Holgeir?" mælti hún þurrlega. „Svo bjóðum við yðttr velkomna, ungfrú Kruse,“ sagði frúin. „Það færi betur að þér nii fengjuð bót meina yðar hér hjá okkur.' „Þakka yður kærlega fyrir óskina; eg vona fastlega að svo verði." Og hin unga mær brosti svo, að markaði fyrir spékoppunum í
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.